Frumkvöðullinn og fjárfestirinn Reynir Grétarsson hefur byggt upp alþjóðleg fyrirtæki og náð miklum árangri í viðskiptum. En þrátt fyrir að markmiðin næðust var hann langt frá því að vera hamingjusamur. Í viðtali við Frosta Logason í Spjallinu ræðir Reynir ævintýralegan feril sinn, persónulegar áskoranir og nýja bók sína, Bókasafn gagnslausra hugsana.
Reynir var aðeins 24 ára þegar hann stofnaði ásamt tveimur félögum fyrirtækið Lánstraust, sem síðar varð Creditinfo. Enginn fjárfestir hafði trú á hugmyndinni og því lögðu félagarnir sjálfir til tvær milljónir króna og létu slag standa.
Fyrirtækið átti eftir að vaxa langt út fyrir landsteinana og verða að alþjóðlegu stórfyrirtæki með starfsemi í fjölda landa.
„Allt sem ég stefndi að gekk upp“
En velgengnin hafði sínar skuggahliðar. Reynir lýsir því hvernig hann varð sífellt uppteknari af því að stækka fyrirtækið og opna nýja markaði, á sama tíma og persónulegt líf hans var í uppnámi.
„Ég var ekki hamingjusamur, ég var bara ógeðslega óhamingjusamur,“ segir Reynir.
„Allt sem ég stefndi að gekk upp.“
Þegar Frosti bendir á að það hafi greinilega ekki verið nóg svarar Reynir:
„Það gaf mér ekki neitt. Það var ekki málið sko. Þú veist, vandamálið var ekki fyrir utan sjálfan mig.“
Reynir segist á endanum hafa áttað sig á því að hann þyrfti að stíga til hliðar sem forstjóri fyrirtækisins.
Frá milljarðaviðskiptum til gagnslausra hugsana
Í viðtalinu ræðir Reynir einnig nýútkomna bók sína, Bókasafn gagnslausra hugsana, þar sem hann fjallar um neikvæðar hugsanir, sjálfsgagnrýni og hvernig fólk getur lært að láta eigin hugsanir ekki stjórna lífi sínu.
Hann segir meðal annars frá því hvernig óvenjuleg reynsla af hugvíkkandi efnum varð honum innblástur við mótun hugmyndarinnar.
Reynir ræðir einnig hversu háður hann hafi verið viðurkenningu annarra, þrátt fyrir allan árangurinn.
„Ég hef alltaf þurft að fá mína viðurkenningu utan frá. Eins og við svo mörg. Það þarf einhver að staðfesta að við séum góð og á réttri leið,“ segir hann.
Viðtalið er einlægt samtal um peninga, metnað, mistök og þá spurningu hvort raunveruleg hamingja felist yfirhöfuð í því að ná árangri á mælikvarða annarra.