Gerðu húsleit hjá þingkonu Demókrata
Ilhan Omar hefur áður sagt rannsókn yfirvalda á sér vera pólitíska árás. Þrjár vikur eru til þingkosninga í Bandaríkjunum, þar sem úrslitin ráða því hvor flokkurinn fær meirihluta á þingi. Omar hefur gagnrýnt Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, harðlega, sem hefur svarað af hörku.
Bandarískir alríkisfulltrúar gerðu húsleit á heimili Ilhan Omar, þingkonu demókrata, í Washington í dag vegna sakamálarannsóknar, að sögn bandarískra fjölmiðla. Húsleitin markar verulega stigmögnun í átökum Donalds Trumps forseta við þingkonuna, sem hefur gagnrýnt hann harðlega.
Fulltrúar Homeland Security Investigations (HSI), rannsóknardeildar bandarískra innflytjendayfirvalda, framkvæmdu húsleitina, samkvæmt frétt Fox News sem byggir á heimildum fólks sem þekkir til málsins. Þrjár vikur eru til þingkosninga þar sem úrslitin munu ráða því hvor flokkurinn fer með meirihluta á Bandaríkjaþingi.
Fox News greindi frá því að húsleitin tengdist sakamálarannsókn á mögulegum svikum við gerð gagna vegna umsóknar í innflytjendamálum sem látinn faðir Omar, sem fæddist í Sómalíu, lagði fram fyrir hennar hönd þegar hún var barn.
Bandarískir fjölmiðlar höfðu eftir dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna að fulltrúar hefðu gert húsleit með heimild dómstóls á Washington-svæðinu. Embættismenn nefndu þó ekki Omar og greindu ekki frá því hvers eðlis rannsóknin væri.
„Í dag framkvæmdi Homeland Security Investigations …