Á vef Veðurstofunnar má sjá að gular viðvaranir taka gildi á suðurhluta landsins á miðvikudagsmorgun og taka þær gildi á vestur- og norðvesturhluta landsins um hádegisbil.
Spáð er austan- og norðaustan stormi þar sem má reikna með snörpum vindhviðum víða um land og verður ýmist varasamt eða ekkert ferðaveður.
Appelsínugul viðvörun tekur svo gildi á Vestfjörðum klukkan 17 á miðvikudag og á Ströndum og Norðurlandi vestra þremur tímum síðar.
Síðustu viðvaranirnar gilda til sex á fimmtudagsmorgun.
Á vef Veðurstofunnar má sjá að eins og staðan er nú verða engar viðvaranir í gildi á höfuðborgarsvæðinu.
Að neðan má sjá upplýsingar um þær viðvaranir sem hafa verið gefnar út:
Suðurland
- Austan og norðaustan stormur (Gult ástand)
- 14 okt. kl. 06:00 – 12:00
- Austan og norðaustan 15-25 m/s og snarpar vindhviður, hvassast syðst. Talsverð rigning á láglendi. Varasamt ferðaveður. Lausamunir geta fokið.
Faxaflói
- Norðaustan og norðan stormur (Gult ástand)
- 14 okt. kl. 10:00 – 23:00
- Norðaustan og síðar norðan 15-25 m/s og snarpar vindhviður, hvassast norðantil. Talsverð rigning á láglendi, en slydda eða snjókoma til fjalla, einkum norðantil. Varasamt ferðaveður. Lausamunir geta fokið.
Breiðafjörður
- Norðaustan og norðan stormur (Gult ástand)
- 14 okt. kl. 10:00 – 20:00
- Norðaustan og síðar norðan 15-25 m/s og snarpar vindhviður, hvassast norðantil. Talsverð rigning á láglendi, en slydda eða snjókoma til fjalla. Varasamt ferðaveður. Lausamunir geta fokið.
- Norðan hríð (Gult ástand)
- 14 okt. kl. 20:00 – 15 okt. kl. 01:00
- Norðan 15-23 m/s og slydda eða snjókoma. Takmarkað skyggni og snjóþekja á vegum. Varasamt ferðaveður. Lausamunir geta fokið.
Vestfirðir
- Norðaustan hríð (Gult ástand)
- 14 okt. kl. 11:00 – 17:00
- Norðaustan og síðar norðan 15-25 m/s og snarpar vindhviður. Talsverð eða mikil rigning, slydda eða snjókoma, snjólínan færist neðar eftir því sem á líður. Slæmt ferðaveður. Lausamunir geta fokið.
- Norðan stórhríð (Appelsínugult ástand)
- 14 okt. kl. 17:00 – 15 okt. kl. 02:00
- Norðan 18-25 m/s. Talsverð eða mikil snjókoma eða slydda með lélegu skyggni og snjó á vegum. Ekkert ferðaveður. Snarpar vindhviður og lausamunir geta fokið.
Strandir og Norðurland vestra
- Norðaustan stormur (Gult ástand)
- 14 okt. kl. 10:00 – 20:00
- Norðaustan 15-25 m/s, hvassast í vindstrengjum við fjöll og snarpar vindhviður. Talsverð eða mikil rigning á láglendi, en slydda eða snjókoma til fjalla. Varasamt ferðaveður. Lausamunir geta fokið.
- Norðan stórhríð (Appelsínugult ástand)
- 14 okt. kl. 20:00 – 15 okt. kl. 05:00
- Norðan 18-25 m/s, hvassast norðantil. Talsverð eða mikil snjókoma eða slydda með lélegu skyggni og snjó á vegum. Ekkert ferðaveður. Snarpar vindhviður og lausamunir geta fokið.
Suðausturland
- Austan og norðaustan stormur (Gult ástand)
- 14 okt. kl. 06:00 – 12:00
- Austan og norðaustan 15-25 m/s og snarpar vindhviður, hvassast undir Öræfajökli. Talsverð eða mikil rigning á láglendi. Varasamt ferðaveður. Lausamunir geta fokið.
Miðhálendið
- Austan og norðaustan stormur með hríð (Gult ástand)
- 14 okt. kl. 07:00 – 14:00
- Austan og norðaustan 18-25 m/s og snarpar vindhviður. Talsverð eða mikil snjókoma, slydda eða rigning. Ekkert ferðaveður.
- Norðvestan hríð (Gult ástand)
- 14 okt. kl. 20:00 – 15 okt. kl. 06:00
- Norðvestan 15-25 m/s og snjókoma. Ekkert ferðaveður.