Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í síðustu viku fyrir frumvarpi um breytingar á húsaleigulögum. Þar er meðal annars lagt til að mánaðarleg vísitölutenging leigu verði bönnuð og að leigufjárhæð geti að hámarki tekið breytingum einu sinni á ári. Auk þess er lagt til að sett verði hámarksþak á reglubundnar hækkanir leigufjárhæðar.
Frumvarpið var lagt fram sem liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir því að kjarasamningar héldu. Töluvert var tekist var á um áhrif frumvarpsins á þingi. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, og Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar, ræddu breytingarnar í Vikulokunum síðasta laugardag.
Áhyggjur af minna framboði og hærri leigu
Bergþór efast um að leigubremsa skili þeim árangi sem að er stefnt. „Það er nú kannski allt um lykjandi afstaða hagfræðinga hvort sem þeir eru hægra eða vinstra megin sýnist manni þegar horft er til útlanda, að þetta sé ekki vænlegt til þess að ná árangri til að ná því markmiði sem sett er fram,“ segir Bergþór.
Markmiðið sé ágætt og enginn sé andsnúinn því, „en leiðin að því er ekki þessi. Ég er alveg sannfærður um það. Það sem ég óttast er að bæði muni þetta hækka leigu, þetta muni draga úr framboði leiguhúsnæðis og hitta þá fyrir sem síst ráða við það sem eru þeir sem eru í raunverulega þröngri stöðu og mega ekki við því að staðan á leigumarkaði verði snúnari heldur en hún nú þegar er.“
Lítið fór fyrir þingmönnum Viðreisnar í þingsal þegar breytingarnar voru ræddar þar, „ég taldi, ekkert. Ekki eitt andsvar. Ekki ein ræða,“ segir Bergþór. Aðspurð hvort hún sé í raun að samþykkja mál sem hún sé mótfallin segir Sandra svo alls ekki vera.
„Það voru kjarasamningar sem héldu í vikunni og framlenging þeirra er það sem tryggir stöðugleika á vinnumarkaði. Leigubremsa var líka forsenda að kjarasamningar héldu,“ segir Sandra og bendir á að verkalýðshreyfingin hafi kallað eftir leigubremsu. Þá auki breytingarnar fyrirsjáanleika fyrir leigjendur, meiri stöðugleiki verði þegar einungis verður hægt að hækka leiguverð einu sinni á ári.
Spurð hvort hún óttist ekki að leiguverð hækki í kjölfar breytinganna segir hún að það þurfi að ræða í velferðarnefnd Alþingis. „Ég heyri alveg þessar raddir, við heyrum og hlustum,“ segir Sandra. „Ég sat í þingsal og hlustaði á þessar áhyggjuraddir og við tökum þær til skoðunar. Ég segi við Bergþór: bíddu bara og við skulum spyrja að leikslokum.“
Nánar var rætt við Bergþór Ólason og Söndru Sigurðardóttur um leigubremsu, bókun 35, heimsókn utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands og fleira í Vikulokunum.