Um 200 nemendur við Háskólann á Bifröst gátu ekki tekið próf á fimmtudaginn vegna tæknivandræða.
„Það komu upp auðkenningarvandræði vegna uppfærslu hjá Inspera, sem er þjónustuaðili prófakerfisins hjá okkur, og þetta varð til þess að við urðum að virkja viðbragðsáætlun á fimmtudagsmorguninn og fresta prófinu sem til stóð að taka þá,“ segir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst, um tæknibilun sem upp kom á fimmtudag.
Tæknilegu vandræðin höfðu áhrif á um 200 nemendur. Einhverjum var boðið að taka heimapróf í staðinn en stór hluti tók prófið á laugardaginn. Allir nemendur við Bifröst eru í fjarnámi. Einhverjir voru mættir í sínar fjarnámsaðstöður til að taka prófið þegar vandræðin uppgötvuðust. Sumir voru svekktir þó að flestir hafi sýnt þessu skilning, segir Ólína.
„Við fengum skilaboð frá nokkrum nemendum en langflestir sýndu þessu skilning og tóku bara prófið á öðrum tíma. Auðvitað geta alltaf komið upp tæknivandamál. Þetta raskar þeirra áætlunum og veldur þeim óþægindum. Okkur þykir það mjög miður.“
Nýr veruleiki með auknu fjarnámi
Nýr veruleiki blasir við þegar fjarnám er orðið eins vinsælt og raun ber vitni. Um 1900 nemendur stunda nám við Bifröst.
„Þegar nám er komið algjörlega í skýið eins og hjá okkur er það tæknin sem allt veltur á. Fjarnámið er stórkostlegt fyrirbæri, það ryður úr vegi hindrunum eins og landfræðilegum hindrunum.“