Dómurinn var kveðinn upp klukkan þrjú í Héraðsdómi Suðurlands sem er á Selfossi.
Sjá nánar: Fjárkúgun í Reykholti
Ingunn Rut Sigurðardóttir, ein ákærðra og barnsmóðir Andra Más, hlaut þriggja ára dóm en hún játaði að hluta til sök við aðalmeðferð málsins. Sigurður Gunnar Ásgeirsson, faðir Ingunnar, neitaði sök og hlaut tveggja og hálfs árs dóm.
Þá var Pétur Már Mortensen Birgisson, bróðir Andra, einnig meðal ákærðra. Héraðssaksóknari fór fram á fjögurra til sex ára fangelsisvist yfir honum og var hann dæmdur í þriggja ára fangelsisvist.
Loks voru Halldór Logi Sigurðsson og Níels Pálmar Benediktsson einnig meðal ákærður. Farið var fram á fjögur til sex ár yfir Níelsi en hann var dæmdur í eins árs fangelsi. Halldór Logi var dæmdur í sex mánaða fangelsisvist en héraðssaksóknari fór fram á þriggja til fimm ára fangelsi.
Brotaþoli fær sex milljónir króna í miskabætur sem skiptast á milli allra ákærðu. Einnig þurfa þau að greiða þóknun skipaðs réttargæslumanns brotaþola sem er tæpar átta milljónir króna. Þá þarf að greiða sameiginlegan og útlagðan sakarkostnað sem gera rúmar þrjár milljónir króna.
Loks þurfa Andri, Ingunn og Sigurður að greiða tæpar fimmtíu þúsund krónur og Pétur rúmar fjörutíu þúsund krónur. Sakarkostnaður sexmenninganna hleypur einnig á tugum milljóna króna. Andri þarf að greiða mest, tæpar 25 milljónir króna.
Stórfellt ofbeldi
Dómurinn sjálfur hefur ekki verið birtur en í ákærunni er Andra, Halldóri og Níelsi gefið að sök að hafa ráðist inn á heimili brotaþola á föstudagskvöldi og beitt hann ofbeldi. Markmið þeirra hafi verið að fá brotaþola til að gefa upp rafræn skilríki. Við aðalmeðferðina sagði Halldór Logi að hann hefði yfirgefið hópinn í Mosfellsbæ og aldrei farið upp í Reykholt.
Brotaþoli leigði íbúð hjá Sigurði og kom fram við aðalmeðferðina að Sigurður teldi hann skulda sér pening fyrir leigunni. Andri hafi því ætlað að fá brotaþola til að greiða leigutekjurnar.
Sigurður, Ingunn og Pétur eiga einnig, samkvæmt ákærunni, að hafa tekið þátt í ofbeldinu, til að mynda slegið hann með hnúajárni og hótað með keðjusög. Andri hafi síðan millifært tæpar átján milljónir króna af reikningi brotaþola á reikninga í eigu Sigurðar, Andra, Ingunnar og Péturs.
Þeim er loks gefið að sök að hafa fylgt brotaþola upp á Keflavíkurflugvöll og skipað honum að fara til Möltu annars myndi dóttir hans hljóta skaða.
Fréttin hefur verið uppfærð.