Fjórir karlmenn og ein kona eru grunuð um stórfellda líkamsárás gegn karlmanni á þrítugsaldri í Reykjanesbæ fyrr í mánuðinum. Lögregla hefur handtekið og yfirheyrt fjögur þeirra en leitar þess fimmta.
Þetta staðfestir Stefán Sveinsson lögreglufulltrúi á Suðurnesjum.
Þau grunuðu eru á þrítugs-, fertugs-, og fimmtugsaldri. Þau fjögur sem lögregla hefur haft uppi á hafa þegar verið yfirheyrð og þeim sleppt aftur. Enginn situr í gæsluvarðhaldi í tengslum við málið. Bæði brotaþoli og hin grunuðu eru Íslendingar.
Frekar persónulegar erjur en skipulögð brotastarfsemi
Stefán segir brotaþola útskrifaðan af sjúkrahúsi og að betur hafi farið en á horfðist í fyrstu. Málið sé engu að síður rannsakað sem stórfelld líkamsárás þar sem sérlega hættulegri aðferð hafi verið beitt. Lögregla telur að barefli hafi verið beitt í árásinni en vill ekki gefa upp hvers kyns barefli.
Árásin átti sér stað 2. október fyrir utan heimahús en Stefán segir lögreglu hafa ráðist í eina húsleit í tengslum við rannsóknina. Málið sé ekki talið tengjast skipulagðri glæpastarfsemi en lögregla þekki til hinna grunuðu. Það sé frekar talið tengjast persónulegum erjum.
Lögregla telur að sá sem enn er leitað að sé á landinu og gerir Stefán ráð fyrir því að lögregla hafi uppi á honum í dag eða á morgun.