Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sendiherra Íslands í Bretlandi og fyrrverandi utanríkisráðherra, segir andrúmsloftið í Úkraínu, sérstaklega í höfuðborginni, vera talsvert þyngra en í fyrri heimsóknum sínum til landsins. Enda hafi mannfall almennra borgara í árásum Rússa aukist og útlit sé fyrir erfiðan vetur.
„Ég verð að segja að það er annað andrúmsloft, sérstaklega í Kænugarði, þar sem árásir hafa stigmagnast verulega undanfarnar vikur. Álagið á almenna borgara, á heimilum sínum, á leiðinni í vinnuna og í skólann, hefur ekki verið meira frá upphafi stríðs.“
Þá séu sífellt fleiri íbúar borgarinnar að hugsa sér til hreyfings til að finna sér annan stað fyrir köldustu mánuðina.
„Maður getur ekki annað en fundið fyrir samkennd með fólki sem heldur áfram að berjast, hver á sínum vettvangi, fyrir fullveldi, sjálfstæði, frelsi og betri framtíð.“
Dýrt að verjast en betra en að láta undan ofbeldi
Evrópusambandið er að herða aðgerðir gegn Rússum, en á meðan losa stjórnvöld í Bandaríkjunum um höft á sölu á rússneskri dísilolíu.
Þórdís Kolbrún segir alveg skýrt að Úkraínumenn eigi að fá þá aðstoð sem til þarf til að þjóðin geti varist árásum og haldið samfélaginu gangandi.
„Það eru auðvitað ríki sem standa innilega með Úkraínu. Fyrst og fremst Evrópuríki, og þar fremst í flokki okkar nánustu vinir og bandalagsríki á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum, og Bretland, Frakkland, Pólland og Þýskaland.“
Þessi ríki geri sér grein fyrir því að þótt það sé hörmulegt og dýrt að þurfa að verjast innrás, sé það betri og mannúðlegri valkostur en að láta undan ofbeldi Rússa.
Donald Trump Bandaríkjaforseti olli nokkru fjaðrafoki þegar hann opnaði fyrir útflutning á dísilolíu frá Rússlandi, sem er talið geta tvíeflt Rússa í árásum á Úkraínu.
„Við erum auðvitað að fá mjög undarleg skilaboð frá Bandaríkjunum. Forseti Úkraínu ávarpaði öryggisráðstefnuna í Varsjá í morgun, þar sem ég er núna, áður en ég fer aftur til London. Þau heyrðu ekkert um þetta svokallaða orkuvopnahlé. Við lásum bara um það á samfélagsmiðlum.“
Vonar að pressað verði á Rússa
Volodymyr Zelensky hafi sagt í ávarpi sínu að ljóst væri að Vladimír Pútín Rússlandsforseti hafi heldur ekki vitað af þessu vopnahléi, vegna þess að Rússar héldu áfram að sprengja orkuinnviði Úkraínu í nótt, eftir að hið svokallaða orkuvopnahlé átti að taka gildi.
Þórdís Kolbrún sagði að Úkraínumenn hafi á meðan haldið að sér höndum í árásum sínum gegn orkuinnviðum Rússa. Hún vonar að Bandaríkin muni ýta á Rússa eftir efndum.
„Úkraínumenn eru sannarlega tilbúnir í hvers kyns vopnahlé, og alveg sérstaklega á orkusviðinu, þar sem verið er í raun að lama samfélagið.“