Húsleit var gerð í morgun á heimili Ilhan Omar, þingkonu Demókrata. Fox News greinir frá því að leitin hafi verið framkvæmd af rannsakendum Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna.
Í sömu frétt kemur fram að leitin tengist rannsókn á því hvort glæpsamlegt athæfi hafi verið framið þegar skjöl voru lögð fram við komu hennar til landsins. Omar er fædd í Sómalíu og var barn að aldri þegar hún kom til Bandaríkjanna. Faðir hennar, sem nú er látinn, framvísaði skjölunum. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna staðfesti að húsleit hefði farið fram í Washington en gaf ekki frekari upplýsingar.
Ítrekað hefur slegið í brýnu milli Omar og Donalds Trump forseta Bandaríkjanna. Omar hefur verið sérstaklega gagnrýnin á aðgerðir Trumps gegn innflytjendum. Tom Homan, sérstakur landamærakeisari sem Trump skipaði til að sjá um aðgerðir gegn innflytjendum, sagði í síðasta mánuði að Omar væri til rannsóknar. JD Vance varaforseti hafði áður lýst því yfir að hann teldi að Omar hefði brotið innflytjendalög,
Omar kannaðist þá ekki við að nein slík rannsókn stæði yfir og sagðist ekki hafa heyrt neitt frá Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna. Hún harðneitar ásökununum og segir pólitískar ástæður liggja að baki þeim.
Omar hefur setið á þingi síðan árið 2018 fyrir Minnesota, í kjördæminu þar sem borgin Minneapolis er. Þar fór ICE í miklar aðgerðir gegn innflytjendum í fyrra. Þar er eitt stærsta samfélag Sómala í Bandaríkjunum. Þrjár vikur eru í þingkosningar í Bandaríkjunum.