Bæði Intermarché og Cooperative, tvær af stærstu stórmarkaðskeðjum Frakklands, urðu fyrir barðinu á tölvuárásinni, að því er segir í frétt evrópska blaðsins Politico. Hundruð verslana urðu fyrir áhrifum af völdum hennar.
Breska ríkisútvarpið BBC segir að tölvuþrjótar hafi náð stjórn á hugbúnaði sem stýrir hita í kælum. Þeir hafi hækkað hitann í sumum þeirra upp í allt að fimmtíu gráður í nótt.
Franskir fjölmiðlar segja að árásin hafi beinst að kælum frá danska framleiðandanum Danfoss. Skrifstofa Sébastiens Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, segir að galli hafi fundist í hugbúnaði kælanna og að danskt fyrirtæki hafi verið látið vita af honum.
Franska netöryggissveitin rannsakar nú árásina og nýtur liðsinnis annarra sveita frá Evrópusambandinu og fleiri ríkja sem kunna að hafa orðið fyrir árásinni.
Umfang árásarinnar liggur enn ekki fyrir. BBC segist hafa heimildir fyrir því að aðrar stórar keðjur eins og Carrefour, E.Leclerc og Monoprix hafi einnig orðið fyrir árás.