Æðsti yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Evrópu hefur varað Rússa við því að bandalagið muni svara af fullum þunga ef ráðist verður á eitthvert aðildarríkja þess.Hann segir að ef einhver verði svo „heimskur“ að gera slíka árás muni NATO tryggja að hún verði með öllu árangurslaus.Alexus Grynkewich, æðsti yfirmaður herafla NATO í Evrópu, lét þessi orð falla á öryggisráðstefnu í Varsjá í Póllandi fyrr í dag. Reuters greinir frá.
NATO sendir Pútín skýr skilaboð – „Ef einhver er svo heimskur að ráðast á okkur“