Evrópusambandið bætti formlega við hátt í 1.600 nýjum einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum á listann yfir þá sem sæta efnahags- eða viðskiptaþvingunum vegna þátttöku í stríðinu í Úkraínu. Þetta eru 826 rússnesk fyrirtæki og 743 einstaklingar sem stýra þessum fyrirtækjum. Þetta er stærsta einstaka viðbótin á listanum yfir slíkar þvinganir frá því stríðið í Úkraínu hófst. Þær ná nú til um 3.500 einstaklinga og lögaðila.
Kaja Kallas utanríkismálastjóri Evrópusambandsins segir að Evrópa sé enn á ný að sýna samstöðu með þessum aðgerðum. „Við gerum það mun erfiðara, seinlegra og dýrara fyrir Rússa að framleiða vopn sem þeir nota til að drepa Úkraínumenn,“ sagði hún.
Í tilkynningu frá ráðherraráði Evrópusambandsins kemur fram að þessar þvinganir beinist aðallega að þeim sem framleiða vopn. Þeir velti minnst 20 milljörðum evra á ári og séu með 250 þúsund manns í vinnu. Þarna eru meðal annars birgjar fyrir mikilvæga hluta vopnaframleiðslunnar, til dæmis rafeindabúnað, tölvur, talstöðvar, loftnet, móttökusenda, leiðsögukerfi fyrir flugvélar, gervihnetti og eldflaugar, sprengiefni og skotfæri.
Þeir sem verða fyrir þessum þvingunum geta átt von á því að eignir þeirra í Evrópu verði frystar, bannað verður að láta þá fá fjármuni eða aðgang að efnahagsumbótum í þeirra þágu og þeir einstaklingar sem eru á listanum mega ekki koma til Evrópusambandslanda.
Ekki samstaða um allt í Evrópu
Undanfarið hefur samstaða um að viðhalda viðskiptaþvingunum ekki haldið. Þar hefur mest borið á samningi sem Donald Trump forseti Bandaríkjanna gerði við Vladimír Pútín forseta Rússlands um kaup á dísilolíu. Tilgangur Trumps með því er að lækka verðið á dísilolíu heima fyrir, sem hefur rokið upp undanfarnar vikur.
Evrópa er þó ekki saklaus af slíku. Evrópusambandið aflétti í síðasta mánuði viðskiptaþvingunum á rússnesku ólígarkana Alisher Usmanov og Mikhail Fridman. Þetta var gert að frumkvæði Frakklands og Lúxemborgar, en þar sem þau veittu ekki samþykki sitt fyrir að þvinganirnar á þá yrðu framlengdar voru þær felldar niður, gegn því að aðrar þvinganir yrðu framlengdar um þrjú ár.
Frakkar vildu aflétta þvingunum á Usmanov vegna þrýstings frá Aserbaísjan. Stjórnvöld þar eru nátengd Usmanov og eru með tvo franska ríkisborgara í haldi sem frönsk yfirvöld vilja fá leysta úr haldi. Lúxemborg krafðist afléttingar á Fridman en hann hefur höfðað mál til að aflétta frystingu á eignum sínum í landinu. Bæði löndin hafa sagt málin varða þjóðaröryggi sitt.