Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot. Þar af er 21 mánuður skilorðsbundinn og er Sverri því gert að afplána 3 mánuði.
Þá er honum einnig gert að greiða hátt í 105 milljón króna sekt í ríkissjóð ella skuli hann sæta fangelsi í 360 daga.
Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudaginn og laut að rekstri Sverris á fjórum einkahlutafélögum. Þá er honum einnig gert að greiða málsvarnarlaun skipaðra verjenda sinna, Jóns Arnar Árnasonar lögmanns, 3,8 milljónir króna og Sveins Andra Sveinssonar lögmanns, 250 þúsund krónur.
Ekki bannað að stofna félög
Ákæruvaldið fór fram á að Sverri yrði bannað að stofna félag með takmarkaðri ábyrgð félagsmanna, sitja í stjórn, starfa sem framkvæmdastjóri eða koma með öðrum hætti að stjórnun eða fara með meiri hluta atkvæðisréttar í slíku félagi í allt að þrjú ár. Héraðsdómur hafnaði þeirri kröfu.
Sverrir hefur komið að rekstri fjölda fyrirtækja í gegnum tíðina en þar á meðal er skemmtistaðurinn B, einnig þekktur sem Bankastræti Club eða B5. Þá hefur hann einnig komið að rekstri Þrastalundar og Brim hótels. Sverrir er eigandi Nýju vínbúðarinnar.
Sverrir Einar var árið 2022 dæmdur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og fyrir peningaþvætti í rekstri einkahlutafélaganna BHG, Sogið veitinga og Jupiter Gistingu. Þá var hann dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi. Honum var sömuleiðis gert að greiða 64 milljóna króna sekt eða að sæta fangelsisvist í 360 daga.
Fréttastofa greindi frá því í nóvember að Sverrir Einar hefði verið ákærður fyrir brot á árunum 2021 til 2024 sem vörðuðu rekstur einkahlutafélaganna Þaks byggingafélags og SG8.