Andri Már Mortensen Birgisson var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir hlut sinn í Reykoltsmálinu. Frá refsingu hans dregst 41 dagur þar sem hann sat í gæsluvarðhaldi frá 26. apríl til 6. júní 2024.
Alls voru sex ákærð í málinu, fimm karlar og ein kona, fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024.
Dómur í málinu var kveðinn upp klukkan þrjú í dag í Héraðsdómi Suðurlands á Selfossi. Dómurinn hefur enn ekki verið birtur.
Ingunn Rut Sigurðardóttir, barnsmóðir Andra, og Pétur Már Mortensen, bróðir Andra, fengu bæði þriggja ára fangelsisdóm fyrir sinn hlut í málinu. Frá þeirra refsingu dregst um mánuður þar sem þau sátu í gæsluvarðhaldi. Ingunn Rut játaði þátt sinn í málinu að hluta en sagðist ekki hafa beitt manninn ofbeldi. Farið var fram á fjögurra til sex ára fangelsi yfir Pétri.
Sigurður Gunnar Ásgeirsson, faðir Ingunnar, hlaut tveggja og hálfs árs dóm. Farið var fram á fjögurra til sex og þriggja til fimm ára fangelsi yfir þeim. Hann neitaði sök í málinu.
Tveir aðrir menn sem voru ákærðir í málinu voru dæmdir í eins og 6 mánaða fangelsi.
Greiða þolanda 6 milljónir
Alls þurfa ákærðu að greiða þolanda í málinu 6 milljónir króna í miskabætur. Athygli vekur að Andri Már þarf að greiða lögfræðingi sínum Þorgils Þorgilssyni 24 milljónir. Þá þarf Sigurður Gunnar að greiða lögmanni sínum Jóni Egilssyni tæplega 17,7 milljónir króna.
Öllum var gefið að sök að hafa með einum eða öðrum hætti komið að frelsissviptingu mannsins sem er 61 árs gamall Palestínumaður með maltneskt ríkisfang. Hann leigði íbúð hjá Sigurði Gunnari og hafði gert það í nokkur ár áður en ofbeldið átti sér stað.
Talið er að ósætti þeirra á milli um leiguskuld hafi orðið til þess að fjölskyldan ákvað í slagtogi við tvo aðra menn að frelsissvipta manninn og hafa af honum fé.