Djúp lægð stefnir á landið og má búast við hvassviðri og úrkomu á miðvikudag. Versta veðrið verður á norðvestanverðu landinu. Garðar Valur Gíslason er bóndi á Stórhóli í Húnaþingi vestra og var í óðaönn að eltast við eftirlegukindur þegar fréttastofa náði af honum tali.
„Við erum hérna uppi á heiði að eltast við nokkrar kindur,“ sagði Garðar. Öll smalamennska og seinni göngur eru búnar á svæðinu og því allt að verða tilbúið fyrir veturinn.
„Ég held ég reki inn á morgun. Það er betra að reka inn á morgun og hleypa þá bara aftur út. Það er allt komið í heimahaga.“
Bændur í Skagafirði taka stöðuna
Sveinn Finster Úlfarsson er sauðfjárbóndi á Ytri-Ingveldarstöðum í Skagafirði.
„Ég er niðri við sjó, þannig að hver gráða í hita skiptir máli. Um leið og þetta er komið upp til fjalla verður þetta ekki gott,“ sagði Sveinn. Hann nýtti helgina í síðustu smalamennskurnar og sagði örfáar kindur eftir á fjalli. Hann reiknaði með að taka sitt fé inn á morgun.
„Við þurfum að gera ráðstafanir. Ég held að allir bændur hér í Skagafirði taki stöðuna í dag og á morgun varðandi veðrið. Það er miklu einfaldara að reka allt inn á morgun og hleypa síðan út á ný.“