Heimsendauggur á mismunandi tímum

Heimsendauggur á mismunandi tímum

Heimsendauggur á mismunandi tímum

Um þessar mundir eru 40 ár liðin síðan Ronald Reagan og Mikhaíl Gorbatsjev, leiðtogar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna ræddu umfangsmikla afvopnun á fundi í Reykjavík. Fundurinn hefur verið álitinn fyrsta skrefið í átt að lokum kalda stríðsins sem einkenndist af gríðarlegum ótta almennings við tortímingu heimsins í kjarnorkustríði milli risaveldanna.

Þótt síðan hafi umræða um óttann litast af nostalgíu um einfaldari heim þar sem hættan þótti skýr og aðeins úr tveimur áttum var hann svo sannarlega raunverulegur og hafði mikil áhrif á daglegt líf fólks.

Margir Íslendingar minnast gulra síðna í símaskránni þar sem útskýrt var hvernig bregðast bæri við yfirvofandi kjarnorkuárás, skólabörnum var kenndur réttur viðbúnaður og almannavarnir settu upp háværar flautur sem þeyta átti blasti náttúruvá eða stríðshætta við.

Sjálfbærni í fæðu- og orkumálum ætti að tryggja afkomu almennings en stærsta áskorunin yrði skortur á innfluttum vörum, þar á meðal eldsneyti og lyfjum.

Hérlendis voru ekki til neðanjarðarbyrgi þar sem leita mátti skjóls, heldur mæltu Almannavarnir með því að fólk héldi sig innandyra, lokaði gluggum og slökkti á loftræstingu kæmi til kjarnorkuárásar, enda veittu steinsteypt hús gott skjól gegn geislun.

Herstöð Bandaríkjanna í Keflavík var miðpunktur umræðunnar hérlendis og óttann við árás Sovétríkjanna á hana má meðal annars glöggt sjá í texta Bubba Morthens við lagið Hiroshima frá 1980: „Þið munið öll, þið munið öll, þið munið öll deyja. Þið munið stikna, þið munið brenna.“

Samtök hernaðarandstæðinga efndu til mótmæla og Keflavíkurgangna til að andæfa stríðsbrölti, herverndarsamningnum og veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu. Tsjernobyl-kjarnorkuslysið árið 1986 var alls ekki til að minnka hræðslu almennings við hræðilegar afleiðingar kjarnorkunnar.

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá hluta þeirra bréfa sem meira en 200 þúsund börn hvaðanæva úr heiminum sendu þeim Ronald Reagan Bandaríkjaforseta og Mikhaíl Gorbatsjev, leiðtoga Sovétríkjanna.

Ógnin mikla virtist yfirstaðin með nýju jafnvægi milli stórveldanna og léttirinn var mikill þegar kalda stríðinu lauk með falli Berlínarmúrsins, Sovétríkjanna, fjölda annarra kommúnistaríkja Austur-Evrópu ásamt hernaðarbandalaginu sem kennt er við pólsku höfuðborgina Varsjá.

Tíundi áratugur síðustu aldar virtist nokkuð friðsæll og farsæll tími í huga íbúa Norður-Ameríku og Vestur-Evrópu enda ógnin við kjarnorkustríð stórveldanna horfin, efnahagsleg velmegun jókst og samið var um frið í langvinnum átökum.

Þar má nefna Oslóarsamkomulagið 1993 og 1995 um frið milli Ísraela og Palestínumanna og samning um frið í borgarastríðinu á Norður-Írlandi, kenndan við föstudaginn langa 1998.

Friðurinn var samt að stórum hluta tálsýn Vesturlandabúa framan af áratugnum enda geisuðu hrottaleg borgarastríð í ríkjum fyrrum Júgóslavíu, Sómalíu, Líberíu, Sierra Leone og Kongó.

Þjóðarmorð var framið í Rúanda 1994 og upplausn Sovétríkjanna leiddi af sér hörð innanlandsátök, meðal annars í Tsjetsjníu. Það var því ekki fyrr en undir lok áratugarins að draga tók úr átökum á heimsvísu og einhvers konar lágmark náðist um miðjan fyrsta áratug 21. aldarinnar.

Heimspekingurinn og stjórnmálafræðingurinn Francis Fukuyama bar þá upp kenninguna um endalok sögunnar sem í grunninn snerist um að vestrænt lýðræði væri eini lífvænlegi valkosturinn til að tryggja stöðugleika, frelsi og hagsæld.

Það myndi smám saman breiðast um heiminn enda væru stór hugmyndafræðileg átök að baki með falli fasismans að lokinni síðari heimsstyrjöld og skipbroti kommúnismans.

Fukuyama hefur ekki þótt sérstaklega sannspár í ljósi þess að nýjar andstæður urðu til með stríðinu gegn hryðjuverkum eftir árásina á Bandaríkin 11. september 2001, uppgangi einræðis- og ríkiskapítalisma í Kína og bakslagi í lýðræðisþróun víða um heim, meðal annars í Rússlandi.

Stigmögnun hefur orðið í átökum síðustu fimmtán ár og spenna vex í breyttum heimi. Síðustu ár hafa meðal annars einkennst af vaxandi ásælni Kínverja til yfirráða í heimshlutanum, ekki síst gagnvart Taívan.

Hátt í fimm ár eru síðan Rússar réðust inn í Úkraínu sem leiddi af sér blóðugasta stríð í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Þau átök hafa valdið mikilli skautun í samskiptum ríkja heimsins líkt og stríð Ísraels og Hamas á Gaza og árásarstríð Ísraels og Bandaríkjanna gegn Íran.

Endurkjör Donalds Trump sem Bandaríkjaforseta hefur aukið verulega á spennuna enda hefur hann kollsteypt samskiptum við Atlantshafsbandalagið, Evrópusambandið og einstaka samherja Bandaríkjanna með hótunum um refsiaðgerðir, tollasetningu og ásælni í landsvæði, ekki síst Grænland og jafnvel önnur á norðurslóðum.

Bandaríski stjórnmálaskýrandinn Anne Applebaum segir Trump hvorki hafa áhuga á þjóðarhag né því að tryggja lýðræði í heiminum. Hann láti sig rótgróin bandalög einu skipta.

Ólíkt því sem var á tímum kalda stríðsins á almenningur í mesta basli við að átta sig á hvaðan ógnin berst hverju sinni og hvers eðlis hún er.

Íbúar veraldarinnar óttast að staðbundin stríð þróist í átt að heimsstyrjöld eða bein átök milli stórvelda, Bandaríkjanna og Kína og jafnvel Rússa með stuðningi bandamanna á borð við Norður-Kóreu og Íran.

Hætta af völdum loftslagsbreytinga hefur orðið mun raunverulegri í hugum fólks vegna veðuröfga sem leitt hafa af sér hamfaraflóð, uppskerubrest og skort á hreinu vatni.

Kaldastríðskynslóðin óttaðist afleiðingar af sístækkandi gati á ósonlaginu, sem varð til vegna notkunar á skaðlegum efnum, en alþjóðlegar aðgerðir síðustu ára hafa orðið til þess að gatið fer síminnkandi.

Mikill vöxtur í þróun gervigreindar hefur á seinustu misserum og árum bæst við ótta fólks og sérfræðinga við afleiðingar af aðgerðum eða aðgerðaleysi æðstu ráðamanna veraldarinnar.

Sá uggur er margþættur. Sjálfvirknivæðingin gæti orðið til þess að eyða störfum og umbylta þannig vinnumarkaðinum á meiri hraða en samfélögin ráða við. Breytingar á störfum vegna tækninýjunga eru auðvitað engin nýlunda en umfangið virðist mun meira en nokkru sinni fyrr.

Bandaríski tölvunarfræðingurinn og framtíðarfræðingurinn Ray Kurzweil, sem starfaði lengi hjá Google, hefur lagt fram umdeilda kenningu um veldisvöxt framþróunar sem beri með sér tækifæri frekar en ógnir. Þróun gervigreindar auki lífsgæði fremur en valdi skaða.

Margir óttast að unnt verði að forrita gervigreindina til að valda skaða eða jafnvel að hún þrói sig í þá átt sjálf.

Þær áhyggjur eru ekki nýjar af nálinni en þóttu distópískar og nánast útilokaðar og voru notaðar sem grunnur að framtíðarkvikmyndum eins og Tortímandanum eða Terminator. Þar höfðu vélmenni, gervigreind, snúist gegn skapara sínum og hafið stríð.

Gervigreindin hefur einnig í auknum mæli verið notuð til að búa til myndskeið og texta í áróðursskyni sem virðast í fljótu bragði og jafnvel við nánari skoðun eiga sér stoð í raunveruleikanum.

Vantraust til fréttaflutnings hefur aukist stórlega og almenningur virðist ekki hafa hugmynd um hverju hann eigi að trúa.

Á samfélagsmiðlum má sjá mikla skautun í umræðunni þar sem ólík sjónarmið takast á með röksemdafærslum úr mörgum og margvíslegum áttum. „Allt sem þú lest er lygi,“ söng Biggi í hljómsveitinni Maus fyrir rúmum aldarfjórðungi.

Margir sjá mikil tækifæri í notkun gervigreindar við margvíslegar vísindarannsóknir, ekki síst á sviði læknisfræði. Gervigreindin er æ meira notuð í hernaði og í sumar braust gervigreindarkerfi OpenAI inn í kerfi annars gervigreindarfyrirtækis, Hugging Face.

Áhyggjurnar snúa einnig að því að gervigreindin geti orðið til að skaða samskipti milli fólks, draga úr sjálfstæðri hugsun og skapa oftraust á upplýsingar sem hún ber á borð. Nýleg könnun Quinnipiac-háskólans sýnir að um níu af hverjum tíu vilja skýrari ramma og reglur um gervigreindarkerfin.

Þótt dómsdagsáhyggjur þeirra kynslóða sem bjuggu við ógnanir kalda stríðsins virðist í fljótu bragði einfaldari en margsnúinn uggur nútímans segja sálfræðingar og aðrir sérfræðingar afleiðingarnar svipaðar.

Hvort tveggja valdi ringulreið í hugum fólks því aðgerðir ráðamanna og tækniframfarir virðist stjórnlaus, hvort sem er vegna kjarnorku eða hraðra samfélagsbreytinga. Líkt og á 9. áratug síðustu aldar sýna rannsóknir að hátt hlutfall barna og ungmenna ber geig í brjósti fyrir framtíðinni.

#heimsendauggur #mismunandi #tímum


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-12-heimsendauggur-a-mismunandi-timum-489590

📰 Aðrar fréttir

„Mér finnst aðallega óheppilegt að ég þurfi að taka þetta samtal við fréttamann“
📅 12.10.2026 👁️ 0
„Mér finnst aðallega óheppilegt að ég þurfi að taka þetta samtal við fréttamann“
Forseti Alþingis segir að engar kvartanir hafi borist vegna 5 þingmanna Norðausturkjördæmis sem skelltu sér í sund eftir hefðbundinn lokunartíma og hy...
Dóra Sif Tynes: Einkennilegt að þingmenn skuli vilja viðhalda réttindamissi Íslendinga
📅 12.10.2026 👁️ 1
Dóra Sif Tynes: Einkennilegt að þingmenn skuli vilja viðhalda réttindamissi Íslendinga
Það er einkennilegt að þingmenn á Alþingi Íslendinga vilji taka til varna fyrir EFTA-dómstólnum til að verja það að Íslendingar búi við skert réttindi...
Össur stendur með Sigmundi Davíð í stóra sundlaugarmálinu - Þetta er ástæðan
📅 12.10.2026 👁️ 1
Össur stendur með Sigmundi Davíð í stóra sundlaugarmálinu - Þetta er ástæðan
Fimm þingmenn Norðausturkjördæmis stálust í Selárlaug í Vopnafirði utan hefðbundins opnunartíma í nýliðinni kjördæmaviku. Frá þessu greindi RÚV á föst...
Sverrir bregst við þungum dómi fyrir skattsvik - „DÓMURINN SEGIR EKKI ALLA SÖGUNA“
📅 12.10.2026 👁️ 1
Sverrir bregst við þungum dómi fyrir skattsvik - „DÓMURINN SEGIR EKKI ALLA SÖGUNA“
Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson segir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem honum var gert að sæta fangelsi og að greiða 105 milljón króna sekt ...
Einar rýndi í nýjustu spárnar fyrir veturinn – Þetta gætum við átt í vændum
📅 12.10.2026 👁️ 1
Einar rýndi í nýjustu spárnar fyrir veturinn – Þetta gætum við átt í vændum
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir nýjar langtímaveðurspár gefa óvenjuskýrar vísbendingar um hvernig veðrið gæti þróast hér á landi í vetur.Spá...
Gull að leysa kókaín af hólmi - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 0
Gull að leysa kókaín af hólmi - Vísir
Gull hefur hækkað verulega í verði á undanförnum árum og þar að auki er það ekki ólöglegt víða um heim eins og fíkniefni eru víðast hvar. Það er því a...
Sinnt út­kalli þar sem grind­verk hafði fokið fyrir ak­braut - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 0
Sinnt út­kalli þar sem grind­verk hafði fokið fyrir ak­braut - Vísir
Hafði lögreglan í nægu öðru að snúast í dag en meðal þeirra mála sem voru skráð í dagbók lögreglunnar frá klukkan fimm í morgun til klukkan 17:00 voru...
Nemendur koma verr undirbúnir til háskólanáms
📅 12.10.2026 👁️ 0
Nemendur koma verr undirbúnir til háskólanáms
Vinnuhópar hafa verið skipaðir, ræður haldnar, stefnur settar - og árið 2023 beitti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þáverandi háskóla-, iðnaðar- og vís...
Abramovich’s close associate misled UK court in £1bn oil-fields case, documents suggest
📅 12.10.2026 👁️ 0
Abramovich’s close associate misled UK court in £1bn oil-fields case, documents suggest
Former Chelsea FC director, Eugene Tenenbaum, helped to manage the oligarch’s wealth.
Tvöhundruð tilkynningar borist vegna minni vatnsþrýstings
📅 12.10.2026 👁️ 0
Tvöhundruð tilkynningar borist vegna minni vatnsþrýstings
Um 200 tilkynningar hafa borist Veitum síðustu daga, ýmist vegna vatnsleysis eða minni þrýstings á vatni. Upplýsingafulltrúi segir slíkum tilkynningum...
Dómurinn segi ekki alla söguna - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 0
Dómurinn segi ekki alla söguna - Vísir
„Ég tel að aðgerðir yfirvalda hafi lamað rekstur þeirra fyrirtækja sem um ræðir. Nú er mér gert að sæta þungum viðurlögum vegna vanskila sem ég tel að...
Óánægja vex mest með störf Ingu Sæland
📅 12.10.2026 👁️ 0
Óánægja vex mest með störf Ingu Sæland
Óánægja hefur almennt vaxið með störf formanna ríkisstjórnarflokkanna frá því á síðasta ári. Vanþóknunin hefur vaxið mest í garð Ingu Sæland, formanns...
Stolnu mál­verkin fundust á bak við vegg - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Stolnu mál­verkin fundust á bak við vegg - Vísir
Málverkin tvö heita Portrait de Madame Colonna Romano og Jeune Femme au puits og eru talin vera 4,2 milljóna evra virði eða tæpar sex hundruð milljóni...
Netárás á stórmarkaði hitaði kæla og skemmdi mat
📅 12.10.2026 👁️ 1
Netárás á stórmarkaði hitaði kæla og skemmdi mat
Frönsku stórmarkaðskeðjurnar E. Leclerc, Intermarche og Cooperative U urðu fyrir netárás sem beindist að kælum stórmarkaðanna. Nokkur hundruð matvöruv...
Össur stendur með sundmönnunum - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Össur stendur með sundmönnunum - Vísir
Þetta segir Össur í færslu á Faceboo þar sem hann dregur dár að viðbrögðum við sundferð þingmanna Norðausturkjördæmis í kjördæmaviku. Málið hefur veri...
Frakkland stefnir í ríkisgjaldþrot
📅 12.10.2026 👁️ 1
Frakkland stefnir í ríkisgjaldþrot
Frakkland stefnir í ríkisgjaldþrot Fréttin12. október 2026Erlent, EvrópusambandiðLeave a Comment Emmanuel Macron , forseti Frakklands. „Gleymið Bandar...
Government expands police support to political figures who are not MPs
📅 12.10.2026 👁️ 1
Government expands police support to political figures who are not MPs
Shabana Mahmood says there is "insufficient protection" for those who play a role in public life.
Andy Burnham to push for new post-Brexit deals at EU summit
📅 12.10.2026 👁️ 0
Andy Burnham to push for new post-Brexit deals at EU summit
Conservative leader Kemi Badenoch said the prime minister was "unpicking" the deal the UK signed with the EU.
Minnst einn lét lífið þegar hann handlék ósprungna sprengju
📅 12.10.2026 👁️ 1
Minnst einn lét lífið þegar hann handlék ósprungna sprengju
Að minnsta kosti einn var drepinn í norðurhluta Ísraels þegar árás var gerð á rútu með framhaldsskólanemum á skólaferðalagi nærri bænum Maalot-Tarshih...
Stærsti viðskiptaþvinganapakki ESB frá upphafi Úkraínustríðsins
📅 12.10.2026 👁️ 2
Stærsti viðskiptaþvinganapakki ESB frá upphafi Úkraínustríðsins
Evrópusambandið bætti formlega við hátt í 1.600 nýjum einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum á listann yfir þá sem sæta efnahags- eða viðskiptaþvingu...
Ragnhildur segir meðalmanninn eyða þetta löngum tíma í símann og samfélagsmiðla
📅 12.10.2026 👁️ 2
Ragnhildur segir meðalmanninn eyða þetta löngum tíma í símann og samfélagsmiðla
Ragnhildur Þórðardóttir, Ragga Nagli, er klínískur heilsusálfræðingur og einkaþjálfari. Á Facebook heldur hún úti vinsælli síðu þar sem hún birtir reg...
„Þetta er allt of hár dómur“
📅 12.10.2026 👁️ 2
„Þetta er allt of hár dómur“
„Þetta er allt of hár dómur,“ segir Þorgils Þorgilsson, lögmaður Andra Más Mortensen Birgissonar sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir aðild ...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Friðurinn er grunnur að hamingjunni – hvað ætlum við Íslendingar að gera?
📅 12.10.2026 👁️ 2
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Friðurinn er grunnur að hamingjunni – hvað ætlum við Íslendingar að gera?
Fjörutíu árum eftir sögulegan fund Reagans og Gorbatsjovs í Höfða stöndum við aftur frammi fyrir heimi þar sem stríð, ótti og vígbúnaður ógna lífi og ...
NATO sendir Pútín skýr skilaboð – „Ef einhver er svo heimskur að ráðast á okkur“
📅 12.10.2026 👁️ 2
NATO sendir Pútín skýr skilaboð – „Ef einhver er svo heimskur að ráðast á okkur“
Æðsti yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Evrópu hefur varað Rússa við því að bandalagið muni svara af fullum þunga ef ráðist verður á ...
Fasteignasali sneri tapi í sigur - Ósannað að hann hafi vitað af myglu í eign sem hann seldi
📅 12.10.2026 👁️ 2
Fasteignasali sneri tapi í sigur - Ósannað að hann hafi vitað af myglu í eign sem hann seldi
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fasteignasala, eða nánar til tekið fasteignasölunni sem hann starfar á, í vil í deilumáli við kaupanda fasteignar. ...
Athafnamaður fær tveggja ára dóm og 105 milljóna sekt fyrir skattsvik
📅 12.10.2026 👁️ 2
Athafnamaður fær tveggja ára dóm og 105 milljóna sekt fyrir skattsvik
Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot. Þar af er 21 mánuður skilorðsbundi...
Yfir sjö­tíu prósent ó­á­nægja með Ingu Sæ­land - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Yfir sjö­tíu prósent ó­á­nægja með Ingu Sæ­land - Vísir
Í könnun Maskínu var spurt hversu vel eða illa formenn stjórnmálaflokka á Alþingi hafa staðið sig á kjörtímabilinu. Könnunin var gerð frá 2. til 7. ok...
„Við teljum okkur svikin og erum vonsvikin með það“
📅 12.10.2026 👁️ 2
„Við teljum okkur svikin og erum vonsvikin með það“
Formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar segja innviðaráðherra hafa grafið undan trausti þegar línuívilnun og rækju- og skelbætur voru skornar niður í ...
Hútar ráðast áfram á Sádi-Arabíu – flugvellinum í Riyadh lokað fram eftir vikunni
📅 12.10.2026 👁️ 2
Hútar ráðast áfram á Sádi-Arabíu – flugvellinum í Riyadh lokað fram eftir vikunni
Skæruliðasveitir Húta í Jemen héldu eldflaugaárásum á Sádi-Arabíu áfram í gærkvöld og nótt. Árás var gerð á eina af flugstöðvum alþjóðaflugvallarins í...
On Yemen's desert battlefield, a war with global consequences is being waged
📅 12.10.2026 👁️ 2
On Yemen's desert battlefield, a war with global consequences is being waged
Yemen's entrenched civil war is now impossible to ignore. But in operating rooms in its port city of Aden, geopolitics feels remote.
Leita enn að einum eftir al­var­lega líkams­á­rás - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Leita enn að einum eftir al­var­lega líkams­á­rás - Vísir
Þetta staðfestir Stefán Sveinsson, aðstoðyfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurnesjum en Rúv greindi fyrst frá. Fimm eru grunaðir um aðild að líkam...
Ráðleggja minni loðnuveiði en gert var ráð fyrir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Ráðleggja minni loðnuveiði en gert var ráð fyrir
Hafrannsóknastofnun og Náttúrustofnun Grænlands hafa uppfært veiðiráðgjöf fyrir loðnuvertíð vetursins. Í júní gerði Hafró ráð fyrir að veiða mætti 358...
„Reka inn á morgun“ áður en veðrið skellur á
📅 12.10.2026 👁️ 2
„Reka inn á morgun“ áður en veðrið skellur á
Djúp lægð stefnir á landið og má búast við hvassviðri og úrkomu á miðvikudag. Versta veðrið verður á norðvestanverðu landinu. Garðar Valur Gíslason er...
15-year-old girl rescued after falling into ravine in Tenerife
📅 12.10.2026 👁️ 3
15-year-old girl rescued after falling into ravine in Tenerife
A 15-year-old girl has been rescued by firefighters after falling into a ravine in Güímar, Tenerife, during the early hours of this morning (Monday).T...
Andri Már dæmdur í 8 ára fangelsi í Reykholtsmálinu
📅 12.10.2026 👁️ 2
Andri Már dæmdur í 8 ára fangelsi í Reykholtsmálinu
Andri Már Mortensen Birgisson var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir hlut sinn í Reykoltsmálinu. Frá refsingu hans dregst 41 dagur þar sem hann sa...
Breytingar framundan á verðtryggðum fasteignalánum - Styttri lánstími og takmarkanir á hækkun höfuðstóls
📅 12.10.2026 👁️ 3
Breytingar framundan á verðtryggðum fasteignalánum - Styttri lánstími og takmarkanir á hækkun höfuðstóls
Kynnt hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda áform um lagabreytingar þegar kemur að verðtryggðum fasteignalánum. Meðal helstu breytinga sem til stendur ...
Höfuðpaurinn í Reykholtsmálinu fékk átta ára dóm - „Ég svífst einskis, mér er skítsama“
📅 12.10.2026 👁️ 3
Höfuðpaurinn í Reykholtsmálinu fékk átta ára dóm - „Ég svífst einskis, mér er skítsama“
Andri Már Mortenssen Birgisson hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir hlut sinn að svokölluðu Reykholtsmáli. Frá þessu greinir Vísir.
Þyngra andrúmsloft í Úkraínu en áður
📅 12.10.2026 👁️ 3
Þyngra andrúmsloft í Úkraínu en áður
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sendiherra Íslands í Bretlandi og fyrrverandi utanríkisráðherra, segir andrúmsloftið í Úkraínu, sérstaklega í hö...
Lofaði henni vinnu á veitingastað á Mallorca – Neyddi hana í vændi í staðinn
📅 12.10.2026 👁️ 3
Lofaði henni vinnu á veitingastað á Mallorca – Neyddi hana í vændi í staðinn
Ung kona sem kom til Mallorca með loforð um vinnu á japönskum veitingastað var samkvæmt lögreglu neydd í vændi af manni sem hún hafði þekkt frá því hú...
Watch: What could Trump's energy ceasefire mean for Ukraine?
📅 12.10.2026 👁️ 2
Watch: What could Trump's energy ceasefire mean for Ukraine?
The BBC's Dan Johnson reports from Kyiv, where Ukrainians face another winter with electricity outages.
Miliband says Britain won't tolerate threats on our soil, as Iran ambassador summoned
📅 12.10.2026 👁️ 3
Miliband says Britain won't tolerate threats on our soil, as Iran ambassador summoned
The prime minister says Iran's Islamic Revolutionary Guard "almost certainly" directed the RAF Fairford incident.
Höfuð­paur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Höfuð­paur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm - Vísir
Dómurinn var kveðinn upp klukkan þrjú í Héraðsdómi Suðurlands sem er á Selfossi. Sjá nánar: Fjárkúgun í Reykholti Ingunn Rut Sigurðardóttir, ein ákærð...
Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimm­tíu gráður - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimm­tíu gráður - Vísir
Bæði Intermarché og Cooperative, tvær af stærstu stórmarkaðskeðjum Frakklands, urðu fyrir barðinu á tölvuárásinni, að því er segir í frétt evrópska bl...
Egede segir að erfitt verði að efla traust til Bandaríkjanna að nýju þótt brýnt sé
📅 12.10.2026 👁️ 3
Egede segir að erfitt verði að efla traust til Bandaríkjanna að nýju þótt brýnt sé
Grænlenski utanríkisráðherrann Múte B. Egede segir brýnt að endurheimta það traust til Bandaríkjanna sem ítrekuð ásælni Donalds Trump forseta hefði sk...
Fjögur handtekin grunuð um hópárás og lögregla leitar hins fimmta
📅 12.10.2026 👁️ 3
Fjögur handtekin grunuð um hópárás og lögregla leitar hins fimmta
Fjórir karlmenn og ein kona eru grunuð um stórfellda líkamsárás gegn karlmanni á þrítugsaldri í Reykjanesbæ fyrr í mánuðinum. Lögregla hefur handtekið...
Um­deild sjálfs­víg frægustu hryðju­verka­manna Þýska­lands - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Um­deild sjálfs­víg frægustu hryðju­verka­manna Þýska­lands - Vísir
Rauða herdeildin, eða Rote Armee Fraktion á þýsku, spratt upp úr róttækri vinstrihreyfingu ungs fólks í Vestur-Þýskalandi eftir 1968. Herdeildin er þó...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Við getum smíðað okkar eigið mállíkan
📅 12.10.2026 👁️ 3
Sigvaldi Einarsson skrifar: Við getum smíðað okkar eigið mállíkan
Í mars síðastliðnum kynnti Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, áform um íslenskt risamállíkan í samstarfi við leiðandi alþjóðl...
Oompa Loompa dvergur reyndist vera barnaperri – Með sokka og fótablæti
📅 12.10.2026 👁️ 3
Oompa Loompa dvergur reyndist vera barnaperri – Með sokka og fótablæti
Skoskur maður á fertugsaldri hefur verið dæmdur fyrir kynferðisbrot gagnvart börnum sem spanna sex ára tímabil. Maðurinn er dvergur og hefur leikið Oo...
Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan - Vísir
Ummæli Ástu Lóu féllu í sérkennilegri deilu við Björn Þorláksson á Samstöðinni í gærkvöldi. Á Facebook-síðu sinni veltir Björn upp þeirri spurningu hv...
Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig
📅 12.10.2026 👁️ 1
Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig
Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig Tóm flugvélMyndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd: Parmanand Jagnandan/Unsplash Bandarís...