Þetta staðfestir Stefán Sveinsson, aðstoðyfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurnesjum en Rúv greindi fyrst frá. Fimm eru grunaðir um aðild að líkamsárásinni, fjórir karlmenn og ein kona. Þau eru á þrítugs-, fertugs- og fimmtugsaldri og öll Íslendingar.
Einn þeirra var yfirheyrður strax eftir árásina og var lýst eftir hinum fjórum. Lögreglan hefur haft uppi á þremur þeirra og yfirheyrt en leitar enn að hinum fjórða, sem er einn karlmannanna. Enginn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hér, nafnlaust eða undir nafni. Fullum trúnaði er heitið.
Einhver tengsl eru á milli brotaþola og þeirra fimm sem grunuð eru um árásina.
Líkamsárásin átti sér stað fyrir utan heimahús og inni í Reykjanesbæ. Stefán segir að atburðarásin liggi nokkurn veginn fyrir en gat ekki veitt nánari upplýsingar. Brotaþoli var fluttur á sjúkrahús en hefur verið útskrifaður.
Samkvæmt tilkynningu sem lögreglan birti í síðustu viku var ráðist í húsleit á fleiri en einum stað. Stefán segir að lögreglan hafi lagt hald á vopn en miðað við alvarleika líkamsárásarinnar telur lögreglan að árásaraðilar hafi beitt barefli.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hér, nafnlaust eða undir nafni. Fullum trúnaði er heitið.