Formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar segja innviðaráðherra hafa grafið undan trausti þegar línuívilnun og rækju- og skelbætur voru skornar niður í september. Á bb.is var sagt frá því að samkvæmt skriflegu samkomulagi þingflokksformanna í vor var fallið frá hugmyndum innviðaráðherra um að fella niður ráðstafanirnar.
„Það var gert skriflegt samkomulag um að það yrði ekki hreyft við þessum svokölluðu 5,3% pottum. Í staðinn færu þá 2.700 tonn til viðbótar í strandveiðar,“ sagði Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks.
Samið um að ráðstafanirnar yrðu ekki felldar niður
Upphaflega lagði innviðaráðherra til í frumvarpi að fella niður aflaheimildir til línuívilnunar og rækju- og skelbóta og bæta í aflaheimildir strandveiðimanna. Þessu mótmælti stjórnarandstaðan. Í apríl skrifuðu þingflokksformenn allra sex flokka á Alþingi undir samkomulag.
Í því fólst að málsgreinar um niðurfellingu línuívilnunar og rækju- og skelbóta yrðu ekki í frumvarpinu.
Í samkomulagi þingflokksformanna var tekið fram að breytingarnar yrðu teknar út úr frumvarpinu en teknar til frekari skoðunar við heildarendurskoðun á byggðakerfinu sem boðaðar voru í frumvarpi á haustþingi. Ráðherra fékk heimild til að úthluta 2.700 tonnum af þorski til strandveiða og þá ráðstöfun átti að jafna síðar.
Heildarendurskoðun byggðakerfis á þingmálaskrá í nóvember
Á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er frumvarp um byggðatengdar veiðiheimildir og talað um að það líti dagsins ljós í nóvember. Um það segir:
„Með frumvarpinu verða teknar til endurskoðunar heimildir til úthlutunar strandveiðileyfa og skýrðar nánar heimildir til úthlutunar byggðatengdra veiðiheimilda með það að markmiði að móta skýrari, markvissari og skilvirkari umgjörð um ráðstöfun þeirra aflaheimilda sem ætlaðar eru til stuðnings sjávarbyggðum.“
„Niðurstaðan er hins vegar þannig að ráðherra gaf út reglugerð núna í september sem augljóslega gengur gegn þessu samkomulagi því þar er verið að ræða um verulegar skerðingar.“
Aflaheimildir til ráðstafananna voru skornar verulega niður frá fyrra fiskveiðiári. Þá þegar voru aflaheimildir aðeins um helmingur af því sem þær voru árið áður.
„Þannig að við teljum okkur vera svikin í þessu máli og erum afskaplega vonsvikin með það.“
Kvörtuðu undan innviðaráðherra til forseta Alþingis
22. september sendu Ólafur Adolfsson, Stefán Vagn Stefánsson og Sigríður Á. Andersen, formenn þingflokka Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Miðflokks bréf til forseta Alþingis þar sem óskað var eftir viðbrögðum hennar. Síðan þá hafa formenn þingflokka fundað um málið en Ólafur segir ráðherra ekki hafa gefið sig enn.
„Ég held að það sé alveg skýrt að það hermi upp á ráðherrann að gefa út þessa reglugerð að nýju þar sem hann tekur til baka þær breytingar sem hann gerði.“
Í bréfinu er tekið fram að þau telji skerðingarnar ganga gegn efni, tilgangi og þeim skýru forsendum sem lágu að baki undirritaða samkomulagsins. Þau óska jafnframt eftir að samráðið sem lofað var verði tryggt, áður en efnislegar ákvarðanir um framtíð úrræðanna verði teknar.
Vill ekki sýndarsamráð
Ólafur segir endurskoðunina miða að því að aflaheimildirnar nýtist sem best til byggðafestu. Það sé hlutverk þingmanna að velja þá kosti sem skynsamlegast sé að nota í þeim tilgangi.
Í bréfinu kalla þingflokksformennirnir eftir að raunverulegt samráð verði haft við stjórnarandstöðu þegar kemur að heildarendurskoðun byggðakerfisins, líkt og kveðið var á um í samkomulaginu.
„Það er ekkert samráð hafið. Ég tel í raun að ráðherra hafi gengið gegn þessu samkomulagi og það sé auðvitað ekki eðlilegt að vera með einhvers konar sýndarsamráð,“ segir Ólafur.