Málverkin tvö heita Portrait de Madame Colonna Romano og Jeune Femme au puits og eru talin vera 4,2 milljóna evra virði eða tæpar sex hundruð milljónir króna.
Nicolas Bessone, saksóknari í Marseille, tilkynnti á blaðamannafundi í dag að bæði málverkin fundust við húsleit á heimili í bænum Clermont-l'Herault. Málverkin voru falin á bak við vegg úr holsteini og fundust við aðra húsleit lögreglunnar. Bæði verkin báru merki um skemmdir.
„Þau voru algjörlega ógreinanleg,“ sagði Bessone samkvæmt France24.
Þjófarnir brutust inn á safnið, sem er fyrrum heimili málarans í bænum Cagnes-sur-Mer, í byrjun september. Þeir höfðu á brott með sér fjögur listaverk en skildu tvö þeirra eftir þegar þeir flúðu vettvang. Lögreglan kom á vettvang fimm mínútum eftir að viðvörunarkerfi safnsins fór í gang og voru þjófarnir á bak og burt.
Sex hafa verið handteknir vegna málsins og meðal tveggja helstu grunuðu er 29 ára gamall karlmaður. Erfðaefni úr honum fannst í tösku sem var skilin eftir á flóttanum en maðurinn hafði verið til rannsóknar hjá lögreglu vegna fíkniefnasmygls.
Fjórir sæta formlegri rannsókn og eru þeir á aldrinum 29 til 51 árs. Tveir þeirra eru enn í haldi lögreglu.