Um 200 tilkynningar hafa borist Veitum síðustu daga, ýmist vegna vatnsleysis eða minni þrýstings á vatni. Upplýsingafulltrúi segir slíkum tilkynningum alltaf fjölga á haustin. Þær hafi þó verið óvenju margar undanfarið.
Tilkynningarnar óvenju margar
„Við höfum fengið töluvert margar tilkynningar um helgina og í dag. Fólk er ekki að fá nægt heitt vatn og síurnar eru að stíflast,“ segir Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna.
Silja segir slíkum tilkynningum alltaf fjölga á þessum tíma árs þegar notkun á heitu vatni eykst. Tilkynningarnar undanfarna daga séu þó óvenjulega margar.
„Síðast þegar ég taldi voru þetta um 200 tilkynningar sem okkur hafa borist frá því á laugardagsmorgun, sem er extra mikið miðað við oft áður,“ segir Silja.
Stærsta umkvörtunarefni fólks sé að þrýstingurinn á vatninu sé að lækka, sem Silja segir að eigi sér eðlilega ástæðu.
Með aukinni notkun heita vatnsins fari náttúrulegar agnir eða óhreinindi af stað innan úr lögnunum og berist í síurnar við inntakið.
„Flestar tilkynningarnar hafa komið úr Vesturbænum, en svo hafa líka komið tilkynningar úr Fossvogi og Lundi í Kópavogi. En mest er þetta í Vesturbænum, það er á endanum á kerfinu okkar og lagnirnar eru eldri því hverfið er eldra,“ segir Silja.
Mikilvægt að einungis þeir sem kunni til verka hreinsi síurnar
Veitur séu með skipulagt viðbragð líkt og alltaf á haustin, þegar tilkynningum um þrýstingslækkun fari fjölgandi.
„Við förum í dreifikerfin og hreinsum úr síunum sem eru þar og skolum út. Hins vegar núna erum við að fara í þau hús sem tilkynna til okkar og þar hreinsum við inntakssíurnar hjá fólki.“
Silja hvetur fólk sem lent hefur í vandræðum með vatnsþrýstinginn til að hafa samband.
„Ef það er vatnslaust eða mjög lítill þrýstingur í öllu húsinu á fólk endilega að hringja í okkur og láta okkur vita. Þá sendum við starfsfólk á staðinn og hreinsum það,“ segir hún, og bætir við:
„Og það er mikilvægt að einungis þeir sem kunni til verka séu að hreinsa síurnar. Allt í lagi að píparar geri þetta, en þetta er öðruvísi en að hreinsa kranann í eldhúsinu. Við viljum ekki að fólk sem kann ekki til verka sé að hreinsa þetta.“