Vá – félag um vernd fjarðar hefur kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála leyfi Kaldvíkur til að reka sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Lögmaður Vár segir að ekki sé búið að rannsaka hvort aurskriður í firðinum gætu laskað sjókvíar og valdið slysasleppingum.
Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þúsund tonna laxeldi í Seyðisfirði.
Vá – félag um vernd fjarðar, afhenti umhverfisráðherra í dag ríflega þrettán þúsund undirskriftir þar sem áformunum er mótmælt. „Við erum að kæra þessi leyfi í dag, á þeim eru fjölmargir annmarkar,“ segir Katrín Oddsdóttir, lögmaður Vár og landeigenda í Seyðisfirði.
„Það er hreinlega ekki búið að fullrannsaka málið. Þarna er t.d. ennþá tel ég gríðarlegur ágalli sem felst í því að það er ekki búið að rannsaka hættuna á því að slysasleppingar, stórar slysasleppingar, geti átt sér stað ef að ofanflóð falla á þessi mannvirki,“ segir Katrín. „Þetta er bara einn af mjög mjög mörgum lögfræðilegum ágöllum sem eru á þessum leyfum.“