Forseti Alþingis segir að engar kvartanir hafi borist vegna 5 þingmanna Norðausturkjördæmis sem skelltu sér í sund eftir hefðbundinn lokunartíma og hyggst ekki beita sér í málinu. Þingmenn sem eigi hlut í máli verði að svara fyrir eigin gjörðir.
Þingmannanna sem eiga í hlut að svara fyrir eigin gjörðir
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, segir engar kvartanir hafa borist vegna fimm þingmanna Norðausturkjördæmis sem skelltu sér í sund eftir hefðbundinn lokunartíma í síðustu viku.
Atvikið hefur vakið mikla athygli og umræðu, bæði í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.
Innt um hvort slíkt sé þingmönnum sæmandi og í takt við þau drengskaparheit sem þeir vinna að stjórnarskránni við upphaf þingsetu segir Þórunn:
„Það er ástæða fyrir því að þingmenn á Alþingi Íslendinga kynna sér og undirrita langflest siðareglur. Við erum kjörnir fulltrúar. Okkur ber að sýna því hlutverki virðingu og haga okkur samkvæmt því. En fyrst og fremst þá ber þeim þingmönnum sem í hlut eiga að svara fyrir sínar gjörðir.“
Fréttastofa greindi frá því á föstudag að nokkrir þingmenn Norðausturkjördæmis hefðu skellt sér í sund eftir lokun í Selárlaug í Vopnafirði í kjördæmaviku Alþingis í síðustu viku.
Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknarflokksins, staðfesti þetta í samtali við fréttastofu. Hann sagði sveitarstjórnarfulltrúa hafa gefið leyfi fyrir sundferðinni og leiðbeint þeim hvernig þeir ættu að bera sig að. Heimamenn hafi verið með þingmönnum í för og þeir gengið frá eftir sig að sundferð lokinni.
Spennandi að fara í sund að loknum kvöldverði
Formleg dagskrá var á Vopnafirði á miðvikudag, en kvöldið áður sóttu þingmenn Norðausturkjördæmis kynningu frá Six Rivers, fyrirtæki Jims Ratcliffe, og kvöldverð á hótelinu Fossgerði ásamt fulltrúum úr sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps.
Stefán Guðnason, oddviti sveitarstjórnar í Vopnafjarðarhreppi, segir það hafa komið til tals yfir kvöldverðinum á Fossgerði að það væri spennandi að fara í sund. Hann hafi brýnt fyrir sveitarstjórnarfólkinu að það skyldi ekki taka þátt slíku.
Hann segir vitað til þess að heimamenn fari stundum í sund utan opnunartíma því áður fyrr hafi sundlaugin alltaf verið opin. Það sé ekkert verið að eltast við það meðan fólk gangi vel um og sé ekki með neitt vesen. Það sé þó ekkert leyfi gefið fyrir slíku og fólk sé þar á eigin ábyrgð.
Aðrir þingmenn hafa ekki gengist við því að hafa farið í sundlaugina eftir lokun, en samkvæmt heimildum fréttastofu voru þar fimm þingmenn úr þremur flokkum sem eru í minnihluta á Alþingi.
Engar kvartanir borist
Þórunn segir algengt að þingmenn ferðist saman um landið, þvert á flokka, í kjördæmaviku. Hvernig þingmenn hagi sér og hvað sé gert í slíkum ferðum sé alfarið í höndum þingmannanna sjálfra.
„Mér finnst aðallega óheppilegt að ég þurfi sem forseti Alþingis að taka þetta samtal við fréttamann,“ segir Þórunn.
Hefur þú eða munt þú beita þér í þessu máli sem forseti Alþingis?
„Ég geri það ekki. Það er þannig að ef einhver kvartar og vísar í siðareglur þá fer það í ákveðinn farveg hjá Alþingi. En að öðru leyti er það ekki mitt að beita mér beint í svona máli.“
Hefur verið kvartað yfir þessari framkomu?
„Nei.“