Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson segir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem honum var gert að sæta fangelsi og að greiða 105 milljón króna sekt í ríkissjóð vegna skattalagabrota, ekki segja alla söguna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Sverris þar sem hann segir aðgerðir yfirvalda hafa lamað rekstur þeirra fyrirtækja sem um ræddi í téðum dómi. Nú þurfi Sverrir sjálfur að sæta þungum viðurlögum vegna vanskila sem hann telur í orsakasamhengi við aðgerðir lögreglu og skattayfirvalda gegn honum sjálfum.
Sverrir bregst við þungum dómi fyrir skattsvik - „DÓMURINN SEGIR EKKI ALLA SÖGUNA“