Vinnuhópar hafa verið skipaðir, ræður haldnar, stefnur settar - og árið 2023 beitti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þáverandi háskóla-, iðnaðar- og vísindaráðherra, sér fyrir því að töluverðir fjármunir voru settir í að efla tæknimenntun á háskólastigi. Í atvinnustefnu núverandi ríkisstjórnar er líka lögð áhersla á að hækka hlutfall háskólamenntaðra í þessum greinum.
Og hvernig hefur gengið? Ekki sérlega vel, að minnsta kosti ekki ef litið er á upplýsingar um fjölda þeirra sem hafa útskrifast úr þessum greinum síðustu árin frá stærstu háskólum landsins, Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Þar hefur þeim sem útskrifast úr grunnnámi í þessum greinum heldur fækkað eða fjöldinn staðið í stað.
Færri nýnemar hófu sömuleiðis nám í STEM-greinum í haust en í fyrra. Mestu munar um að töluvert færri skráðu sig í tölvunarfræði og virðist sem ótti við gervigreindina ráði þar miklu.
Spegillinn ræddi um ástæður þessa við forseta þeirra háskólasviða sem námið heyrir undir.
Glíma við meira áreiti og eru almennt verr undirbúnir
Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, segir að skólinn hafi lengi glímt við að fjölga nemendum í STEM-greinum en það hafi ekki tekist. Þó hafi tekist að halda í horfinu. Fyrir þessu séu margar ástæður. „Eitt af því sem ég hef talað um er að gjáin á milli framhaldsskóla og háskóla hefur sífellt verið að aukast,“ segir hann. Kennarar hafi fundið fyrir því að nemendur komi almennt séð verr undirbúnir til háskólanáms.
Á því séu ýmsar skýringar, meðal annars stytting framhaldsskólanáms úr fjórum í þrjú ár og breytingar á námsskrá grunnskóla. Samfélagsmiðlar hafi líka áhrif og nemendur sem hefji háskólanám núna séu allt öðruvísi en fyrir 20–30 árum. Þeir glími við miklu meira áreiti og eigi erfiðara með að einbeita sér.
Þá hafi Covid-faraldurinn haft töluverð áhrif á þau sem voru í framhaldsskólum þegar hann gekk yfir. Að geta nánast ekkert mætt í tíma í hátt í tvö ár hafi komið niður á félagsfærni og getu til að vinna í hópum.
Einnig hafi væntingar um vinnuálag breyst. Ísland sé orðið ríkara þjóðfélag og nemendur, eins og þjóðfélagið almennt, séu orðnir afslappaðri og ekki eins hungraðir. „Við sjáum þetta líka í okkar nemendaflóru að það koma færri í þau sem eru talin vera erfiðari fög,“ segir hann.
Mikil dreifing á milli framhaldsskóla
Sigurður telur að gera þurfi umbætur á framhaldsskólastigi og meðal annars þurfi að fara yfir námskrána. Námskráin hafi verið opnuð mjög mikið sem valdi því að nemendur komi mjög misvel undirbúnir til háskólanáms. „Við sjáum mikla dreifingu á milli framhaldsskólanna, hvernig þau koma undirbúin til okkar,“ segir hann.
Innan háskólanna sé unnið að tillögum um hvort og hvernig megi endurskilgreina nám á náttúrufræðibrautum og samtal sé í gangi við menntamálaráðuneytið. Sú vinna snúist ekki endilega um að þyngja námið heldur gera það skilvirkara og tryggja að nemendur kynnist því námsefni sem þeir kynntust fyrir 20-30 árum.
Sem dæmi sé forritun nánast algjörlega horfin úr framhaldsskólum.
„Allir halda að okkar ágætu krakkar séu ofboðslega góðir í tölvum. Og þau eru ofboðslega góð í tölvum - en ekki endilega góð í því sem þú þarft að nota þegar þú kemur inn í þessar tæknigreinar,“ segir hann.
Peningar fylgdu árið 2023 en framhaldið er óljóst
Nú hafa stjórnvöld mjög lengi talað um að það þurfi að efla STEM-menntun. Hafa fjármunir fylgt með?
„Já, þetta er góð spurning og kannski svolítið pólitískt erfið,“ segir hann. Síðasta ríkisstjórn hafi sett aukapeninga inn í STEM-greinar og heilbrigðisgreinar á háskólastigi. Því hafi ekki verið fylgt eftir núna. Hann bendir á að í atvinnustefnu núverandi ríkisstjórnar sé mikilvægi STEM-greina mjög haldið á lofti. Eftir eigi að koma í ljós hvort stefnan skili sér í auknum fjárframlögum.
Peningar sem komu í tengslum við STEM-átakið 2023 voru sérstaklega nýttir til að hjálpa nýnemum að taka stökkið úr framhaldsskólum í háskóla. Þessir peningar eru nú á þrotum og Sigurður veit ekki til þess að það eigi að bæta aftur í.
Ef okkur tekst ekki að fjölga nemendum í þessum greinum og þeim jafnvel fækkar sem útskrifast úr þeim. Hvaða áhrif gæti það haft á framtíðarlífskjör á Íslandi?
„Þá er hún í hættu sú stefna og sýn sem við höfum á Íslandi um að efla þekkingarhagkerfið,“ segir hann. Hér sé verið að reyna að gera þekkingariðnað að fjórðu stoðinni undir efnahagskerfið, til viðbótar við fiskveiðar, áliðnað og ferðaþjónustu. Íslendingar hafi náð árangri.
„En betur má ef duga skal,“ segir Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands.
Munurinn sést á fyrstu önninni en núllast svo út
Ólafur Eysteinn Sigurjónsson, sviðsforseti Tæknisviðs Háskólans í Reykjavík, segir líka að breyting hafi orðið á undirbúningi framhaldsskólanema. Háskólakennarar finni að nemendur séu ívið verr undirbúnir en þeir voru fyrir nokkrum árum og ekki eins sterkir á svellinu. Ekki séu þó til rannsóknir á þessu. Vegna þessa sé mikilvægt að háskólarnir komi til móts við þessa nemendur og hjálpi þeim yfir erfiðasta hjallann í upphafi háskólanáms.
Hann segir mögulegt að færri innritist í STEM-greinar þar sem þau skorti sjálfstraust, að þau telji að þau geti ekki tekist á við þessar greinar.
„Mín skoðun er sú að það geta allir lært verkfræði og þessar STEM-greinar, þetta er bara spurning um hversu vel þú ert undirbúinn og hversu vel taka háskólarnir á móti þér til að hjálpa þér,“ segir hann.
Aðspurður hvort munur sjáist á milli framhaldsskóla segir Ólafur að nemendur sem komi úr skólum sem hafi kennt raungreinar áratugum, eða jafnvel öldum saman, komi betur undirbúnir. Munurinn sjáist á fyrstu önninni en svo núllist hann út eftir því sem líður á námið. Hjá HR sé lögð áhersla á að grípa þá nemendur sem standa veikari að vígi.
Samstarf til að brúa bilið
Ólafur segir að skoða þurfi alla menntakeðjuna, frá grunnskóla og upp í háskóla.
Þú talar um að menntakeðjan þurfi öll að vinna í þessa átt. Hefur eitthvað verið gert á lægri skólastigum til þess?
Ólafur bendir á að hann sé ekki sérfræðingur í því sem er kennt í grunnskólum og framhaldsskólum en bendir á að mikið samstarf sé á milli kennara við HÍ og HR annars vegar og í framhaldsskólum sem kenna raungreinar. Tilgangurinn sé að brúa það bil sem virðist vera að myndast á milli framhaldsskóla og háskóla hvað varðar raungreinar.
Ólafur og Sigurður segja báðir að minni ásókn í STEM-greinar sé ekki bundin við Ísland, þetta sé glíma sem eigi sér stað víða um heim. Ólafur bendir þó á að sérstaklega í Finnlandi, en einnig í Danmörku og Svíþjóð, sé meiri áhugi á STEM-greinum. Hið sama megi segja um Eystrasaltsríkin. Þar sé meiri áhersla á að fá nemendur inn í STEM-greinar.
„Þá mögulega á kostnað annarra greina sem er kannski ekki endilega það sem við erum að sækjast eftir,“ segir hann.
Ólafur segist hafa það á tilfinningunni að mun algengara sé að háskólanemar vinni mikið, séu jafnvel í 60-70% starfi meðfram fullu námi. Það geti haft þau áhrif að nemendur velji síður greinar sem almennt eru taldar erfiðar og krefjast mikillar yfirlegu yfir bókum, viðveru í dæmatímum og svo framvegis.
Að lokum segir Ólafur að þegar hann sé spurður um ráðleggingar um námsval svari hann alltaf með sama hætti: „Þú átt að læra það sem þig langar að læra,“ segir hann. Langi nemanda til að læra verkfræði eða einhverja aðra STEM-grein eigi hann að gera það. Telji hann sig ekki nægilega vel undirbúinn geti háskólarnir komið til móts við hann.