Óánægja hefur almennt vaxið með störf formanna ríkisstjórnarflokkanna frá því á síðasta ári. Vanþóknunin hefur vaxið mest í garð Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, og fer úr 47% í fyrra í 71% núna.
Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu um hversu vel eða illa formenn stjórnmálaflokka á Alþingi hafa staðið sig á kjörtímabilinu og visir.is greindi frá fyrr í dag.
Sambærileg könnun var gerð í fyrra og þá var um þriðjungur óánægður með störf Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar, en 44 af hundrað nú. Núna segjast 35% ósátt við störf Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingar, samanborið við 21% á síðasta ári.
Dregið hefur úr óánægju með störf formanns Framsóknarflokksins frá því Lilja Alfreðsdóttir tók við, um 43% svarenda kváðust ósátt við hennar störf samanborið við þau 59 af hundraði sem mislíkaði störf forvera hennar Sigurðar Inga Jóhannssonar.
Líkt og í fyrra segjast um 60 af hundraði telja þau Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formenn Mið- og Sjálfstæðisflokks, hafa staðið sig fremur eða mjög illa. Könnunin var gerð dagana 2. til 7. október.