Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna segir aðför Bandaríkjastjórnar að Alþjóðlega sakamáladómstólnum algjörlega óásættanlega. Hann telur slíka aðför gegn alþjóðlegri samvinnu vera tímabundið frávik frá eðlilegu ástandi.
Aðgerðirnar kveða á um að bandarískum fyrirtækjum verði óheimilt að eiga viðskipti við dómstólinn. Þetta segir dómstóllinn að ógni rekstrargrundvelli hans og sérfræðingar óttast að þetta geti skaðað starf hans verulega.
Ástæða þessara þvingana er málarekstur dómstólsins vegna framferðis bandarískra hermanna í Afganistan og gegn Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.
Volker Turk, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að dómstóllinn hafi undirbúið sig undir átök sem þessi og standi þau af sér.
„Það veikir dómstólinn en hann verður ofan á og hann verður það vegna ríkjanna, því að baki dómstólnum eru þjóðríkin sem skópu hann og undirrituðu lögin. Og ég vona að ríkin sem komu dómstólnum rísi á fætur fyrir hann og taki af öll tvímæli um að þetta sé leiðin.“
Bandaríkjastjórn hefur hvatt ríki sem reiða sig á hernaðarstuðning Bandaríkjanna, að taka þátt í aðgerðunum. Öfugt við það hafa fjölmargir þjóðarleiðtogar þó fordæmt viðskiptaþvinganirnar. Turk segir að enginn græði á að sótt sé að alþjóðasamvinnu og mannúðarstarfi.
„Svo að eina skynsemin er að efla alþjóðlegt samstarf og starfa saman í stað þess að grafa undan honum. Svo að ég lít á þetta sem frávik, tímabundið frávik.“
Bandaríkjastjórn hefur hvatt ríki sem reiða sig á hernaðarstuðning Bandaríkjanna, að taka þátt í aðgerðunum. Öfugt við það hafa fjölmargir þjóðarleiðtogar þó fordæmt viðskiptaþvinganirnar. Turk segir að enginn græði á að sótt sé að alþjóðasamvinnu og mannúðarstarfi.
„Að við höfðum sérstakan dómstól fyrir Júgóslavíu fyrrverandi og Rúanda, og komum svo á fót Alþjóðlega sakamáladómstólnum, er merkilegt afrek fyrir mannkynið, því í reynd er verið að segja við alla þá sem fremja óhæfuverk, að þeir geti aldrei verið óhultir. Við höfum upp á ykkur.“