Það er einkennilegt að þingmenn á Alþingi Íslendinga vilji taka til varna fyrir EFTA-dómstólnum til að verja það að Íslendingar búi við skert réttindi samanborið við aðra íbúa á Evrópska efnahagssvæðinu. Auk þess liggur fyrir með dómum Hæstaréttar Íslands að Ísland hefur ekki innleitt bókun 35 með réttum hætti og hefur þannig brotið EES-samninginn. Málið sem ESA hefur höfðað gegn Íslandi vegna samningsbrots er því fyrir fram tapað. Dóra Sif Tynes, lögmaður og sérfræðingur í ESB- og EES-rétti, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Dóra Sif Tynes: Einkennilegt að þingmenn skuli vilja viðhalda réttindamissi Íslendinga