Hafði lögreglan í nægu öðru að snúast í dag en meðal þeirra mála sem voru skráð í dagbók lögreglunnar frá klukkan fimm í morgun til klukkan 17:00 voru nokkur sem höfðu að gera með almennt umferðareftirlit.
Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu á varðsvæði stöðvar eitt, sem nær yfir Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnes, vegna einstaklings sem hafði komið á veitingastað, borðað og drukkið en ekki getað borgað reikninginn. Sá grunaður um fjársvik.
Fjöldi ökumanna var stöðvaður grunaður um að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna sem og að vera sviptir ökuréttindum. Allir voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku. Einnig var einn ökumaður tekinn fyrir hraðakstur þar sem hann ók á 66 kílómetrum á klukkustund þar sem hámarkshraði var 30 kílómetrar á klukkustund.
Í umdæmi lögreglustöðvar þrjú, sem nær yfir Kópavog og Breiðholt, var óskað eftir aðstoð lögreglu þar sem einstaklingur var grunaður um þjófnað í matvöruverslun. Í dagbók segir að þar hafi „venjubundið ferli“ tekið við.