Frönsku stórmarkaðskeðjurnar E. Leclerc, Intermarche og Cooperative U urðu fyrir netárás sem beindist að kælum stórmarkaðanna. Nokkur hundruð matvöruverslanir urðu fyrir árásinni sem varð til þess að henda þurfti skemmdum mat í stórum stíl.
Fjölmiðlar segja að keðjur eins og Carrefour og Monoprix hafi líka lent í þessu en þær hafa ekki staðfest það.
Árásirnar beindust að kælistýringarkerfi sem danska fyrirtækið Danfoss framleiddi en það fyrirtæki er þekktast á Íslandi fyrir ofnakerfi. Árásarmönnunum tókst að virkja afþíðingarkerfi kælanna í fjölda verslana og hækka hitastigið í þeim. Verslanirnar sem urðu fyrir þessu urðu að farga öllum kælivörum, hvort sem þær voru ferskar eða frosnar. Saksóknarar segja að í einhverjum tilfellum hafi jafnvel kviknað eldur.
Dominique Schelcher, forstjóri Cooperative U, sagði í færslu á X að árásin væri fordæmalaus.
„Að taka sérstaklega fyrir tækjabúnað sem er nauðsynlegur til að halda matvörum ferskum, og þar með fyrir matarbirgðir frönsku þjóðarinnar, er grafalvarlegt. Þetta er ótækt,“ sagði hann.
Ráðist á kerfi sem fá ekki lengur öryggisuppfærslur
Nýjar snjalllausnir fyrir raftæki hafa orðið til þess að tæki eru beintengd netinu sem voru það ekki áður. Það er gert til að hægt sé að stjórna þeim án þess að vera á staðnum, en getur að sama skapi gert þau opin fyrir slíkum árásum sé ekki nægra varúðarráðstafana gætt.
Danfoss segir í skriflegri yfirlýsingu til AFP-fréttastofunnar að kerfin sem ráðist var á séu gömul og fái ekki öryggisuppfærslur. Fyrirtækið hafi í langan tíma ráðlagt stórmörkuðum að uppfæra kerfin. Franskir fjölmiðlar segja hins vegar að netöryggissveit landsins hafi þegar uppgötvað öryggisgalla í kerfum Danfoss og haft samband við fyrirtækið.
Áhyggjur af afleiðingum netárása hafa farið vaxandi víða í Evrópu. Meðal annars hefur Emmanuel Macron forseti Frakklands fyrirskipað aðgerðir til að koma í veg fyrir að Rússar geti truflað mikilvæga innviði með netárásum.