Þetta segir Össur í færslu á Faceboo þar sem hann dregur dár að viðbrögðum við sundferð þingmanna Norðausturkjördæmis í kjördæmaviku. Málið hefur verið til umfjöllunar frá því fyrir helgi og leitt til orðaskipta milli þingmanna og Björns Þorlákssonar, fjölmiðlamanns á Samstöðinni.
Össur tekur afstöðu með sundfólkinu.
„Ég er hins vegar á þeirri skoðun að Sigmundur Davíð þurfi verulega á því að halda – eins og fleiri bústnir kallar – að taka hressilegan sundsprett daglega. Þess vegna stend ég með honum gegn Samstöðinni í þessu máli,“ segir hann.
Húsbrot og fyllerí
Vísir fjallaði um sundferðina á föstudag, en RÚV hafði þá rætt við Þórarin Inga Pétursson, þingmann Framsóknar. Hann sagði hóp þingmanna og heimamanna hafa farið í laugina með leyfi sveitarstjórnarfulltrúa sem hefði leiðbeint þeim.
Ferðin var farin eftir kynningu hjá Six Rivers, fyrirtæki Jims Ratcliffe, og kvöldverð á hótelinu Fossgerði. Stefán Guðnason, oddviti sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps, sagði hins vegar við RÚV að hann hefði brýnt fyrir sveitarstjórnarfólki að taka ekki þátt þegar hugmyndin kom upp. Jafnframt kom fram að heimamenn færu stundum í laugina utan opnunartíma og ekkert væri aðhafst ef umgengni væri góð.
Umræðan hélt áfram um helgina. Björn spurði á Facebook hvort mannamót í kjördæmavikum væru fyrst og fremst svallveislur. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, mótmælti því að þingmenn væru settir undir sama hatt. Hún lýsti um leið sundferðinni sem húsbroti sem fimm þingmenn hefðu framið ölvaðir í vinnuferð. Það var mat hennar á atvikinu.
Ekkert „skinny dip“ í gangi
Ingibjörg Isaksen sagði við Vísi í dag að þingmennirnir hafi farið í laugina í fylgd heimamanna. Hún hafnaði því að stórglæpur hefði verið framinn og taldi verið að gera of mikið úr málinu. Hún vísaði jafnframt á bug að hópurinn hefði farið nakinn í laugina.
Össur virðist ekki heldur sjá ástæðu til að amast við sundferðinni.
„Mér er nokk sama þó hann geri það á óhefðbundnum tímum – svo fremi hann taki ekki hráa hakkið sitt með í laugina,“ segir hann.