Staða hlaðvarpa á Íslandi hefur mikið verið til umræðu undanfarið eftir að Fjölmiðlanefnd skoraði á nokkur vinsælustu hlaðvörp landsins að skrá sig formlega sem fjölmiðla, ellegar sæta sektum. Hlaðvarparar eru óánægðir með þessa framgöngu og líta ekki á sig sem fjölmiðla. Formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, ræddi málið við Vísi á dögunum þar sem hún ræddi hvað einkennir fjölmiðil og hvað það þýði fyrir hlaðvörp. Í viðtalinu sagði Sigríður Dögg eftirfarandi:
Lætur nöfnu sína heyra það vegna ummæla hennar um Gestgjafann - „Tímasetningin gerir þetta verra“