Kjarnorkuógn hefur ekki verið meiri síðan á hátindi kalda stríðsins, að sögn Izumi Nakamitsu, framkvæmdastjóra afvopnunarmála hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún segir heiminn vera að færast inn í nýtt vígbúnaðarkapphlaup og varar við að skortur á samtali milli stórveldanna geti haft alvarlegar afleiðingar.
Öryggisógnir sem blasa við heiminum voru ræddar á friðarráðstefnunni Imagine Forum í Hörpu í dag. Þar komu saman sérfræðingar, þjóðarleiðtogar og áhrifafólk á sviði mannréttinda, friðar og alþjóðamála til að ræða lærdóm af leiðtogafundi Reagan og Gorbatsjovs í Höfða fyrir fjörutíu árum og stöðu alþjóðamála nú á dögum.
Nakamitsu segir þróunina áhyggjuefni.
„Ég tel að við séum í raun farin að sjá einkenni nýs vígbúnaðarkapphlaups og það er afar óheppilegt,“ segir hún.
Hún segir stöðuna alvarlegri en hún hafi verið í áratugi.
„Við erum komin í mjög alvarlega stöðu þar sem kjarnorkuvopnaógnin er meiri en hún hefur verið frá hátindi kalda stríðsins. Við höfum miklar áhyggjur af framtíð vopnaeftirlits, útbreiðslu varna gegn kjarnorkuvopnum og afvopnunar, bæði nú og til framtíðar.“
Segir samtal einu færu leiðina
Nakamitsu segir einu raunhæfu leiðina vera samtal byggt á trausti, þótt slíkt traust hafi víða rofnað.
„Ef okkur tekst ekki að komast aftur inn á þá braut vitum við öll að óheft vígbúnaðarkapphlaup mun að lokum koma niður á okkur öllum.“
Hún hefur einnig áhyggjur af að umræða um mögulega notkun kjarnorkuvopna sé að verða sífellt algengari.
„Við ættum að hafa mjög miklar áhyggjur af umræðu um kjarnorkuvopn sem hefur færst í aukana á undanförnum árum. Ég hef einnig áhyggjur af því að hún sé að verða eðlilegri í hugum fólks. Fólk tekur hana ekki lengur jafn alvarlega vegna þess að þessi orðræða hefur verið endurtekin svo oft. Við megum ekki leyfa því að verða eðlilegt að tala með léttum hætti um mögulega notkun kjarnorkuvopna.“
Skortur á efnislegu samtali
Spurð hvers vegna erfiðara reynist að ná árangri í afvopnunarmálum nú en þegar Reagan og Gorbatsjov gátu átt uppbyggilegt samtal á tímum kalda stríðsins, segir Nakamitsu að þrýsta þurfi á leiðtoga heimsins að hefja samræður á ný.
„Við þurfum að ýta á þá þannig að þeir taki upp samtal á ný eða hefji það aftur. Það myndi gagnast okkur öllum.“
Hún bendir á að skortur sé á raunverulegu samtali milli stórveldanna um þessar mundir.
„Eins og staðan er núna fer ekkert efnislegt samtal fram.“
Að hennar mati hafa nýjar ógnir gert stöðuna flóknari en áður. Háþróuð tæknivopn, gervigreind og fjölþáttahernaður skapi nýjar áskoranir sem leiðtogar kalda stríðsins þurftu ekki að glíma við.
„Að mörgu leyti er staðan því erfiðari í dag en hún var þá,“ segir Nakamitsu.