Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir ólíklegt að vopnahlé á milli Rússa og Úkraínumanna, sem Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti um helgina, hafi nokkurn tímann verið raunverulegt.
„Það virðist hafa verið andvana fætt og jafnvel ekki talað við Rússa um það og allt þetta útspil um að lækka dísilverð fyrir kosningar í Bandaríkjunum virðist hafa verið mjög misráðið,“ segir Erlingur en rætt var við hann í kvöldfréttum.
Umfang samnings Bandaríkjanna og Rússlands gefi til kynna að hann hafi lítil áhrif á olíuverð í Bandaríkjunum. „Þannig að þetta er enn eitt útspilið hjá Donald Trump sem er óþægilegt fyrir Úkraínu en ekki raunverulegt,“ segir hann.
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu sagði stuttu eftir að Trump tilkynnti um vopnahléið að úkraínumenn myndu þó svara fyrir árásir ef Rússar héldu þeim áfram. Rússasr gerðu svo árásir á orkuinnviði í Kharkiv-héraði í Úkraínu skömmu eftir að Trump hafði birt færslu sína.
Erlingur segir Úkraínumenn hafa ítrekað samþykkt vopnahléshugmyndir en staðið hafi á Rússum. Hann bendir einnig á að Sergey Lavrov utanríkisráðherra Rússlands hafi sagt í dag að Úkraínumenn eigi ekki skilið að fá hvíld frá árásum.
„Þannig að vandinn er áfram þeim megin og að auka þrýsting á þá hefur verið vandinn, eins og Zelensky bendir á,“ segir hann.
Erlingur segir að viðskiptaþvinganir sem Evrópusambandið innleiddi formlega í dag hjálpi Úkraínu. Sá pakki nær til hátt í 1.600 einstaklinga og fyrirtækja. Um 3.500 slík sæta nú þvingunum vegna stríðsins í Úkraínu.
„En maður spyr sig að sama skapi af hverju þetta gengur svona hægt og þessar sívaxandi þvinganir hafa gengið með hraða sýrópsins, þannig að meira þarf ef duga skal,“ segir Erlingur sem telur að viðskiptaþvinganirnar sendi einnig skilaboð til Trumps.
Í frétt á miðlinum Financial Times í dag var fjallað um að Trump vilji mögulega hætta PURL-samstarfinu, sem myndi gera Evrópuríkjum erfiðara fyrir að veita Úkraínu hernaðarstuðning. Erlingur segir það einnig geta orðið óþægilegt fyrir Úkraínu.
„Ég hef samt trú á að bandarískir hernaðarframleiðendur myndu mótmæla kröftuglega en það er erfitt að slá nokkru föstu með Donald Trump,“ segir Erlingur sem telur mögulegt að áhugi Trumps á Úkraínustríðinu muni dvína eftir þingkosningar í Bandaríkjunum í næsta mánuði.