Verulega hefur hægt á í byggingariðnaði undanfarið og íbúðum í byggingu fækkað líkt og Spegillinn hefur fjallað um. Hátt í 1.900 nýjar íbúðir eru tilbúnar en standa auðar, sem er 85% fleiri en fyrir ári. Margar hafa staðið tómar í meira en ár. Á sama tíma og óseldum íbúðum fjölgar hefur nýjum framkvæmdum fækkað.
Jón Bjarni Jónsson, formaður Byggiðnar, félags byggingamanna, segir skipulagsmál hluta vandans sem iðnaðurinn stendur frammi fyrir. Langflestar íbúðir sem eru í byggingu eru í fjölbýli eða 76%. „Það eru ákveðnar kvaðir á lóðunum sem þú færð úthlutað, hvaða stærðir þú mátt byggja af íbúðum,“ segir Jón Bjarni. „Það hefur reynst þrautin þyngri hjá fyrirtækjum að fá að breyta því til þess að byggja íbúðir sem henta.“
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun hefur 128 verið sagt upp í hópuppsögnum í byggingariðnaði á þessu ári, þar af næstum sjötíu í september.
Þetta segir þó ekki alla söguna. „Það eru fyrirtæki sem eru að segja upp fjölda sem er innan þess ramma sem þarf að tilkynna, þannig að ástandið er töluvert verra en bara þetta,“ segir Jón Bjarni. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að stór verktaki í greininni hafi sagt upp allt að níu manns í hverjum mánuði á þessu ári, en til að teljast hópuppsögn þarf tíu eða fleirum að vera sagt upp í einu.
Fara síður í framkvæmdir vegna lækkunar á endurgreiðslu
Jón Bjarni bendir á að fólk veigri sér við að ráðast í framkvæmdir í núverandi skattaumhverfi, þar sem endurgreiðsla á virðisaukaskatti hefur lækkað og til stendur að lækka hana enn frekar. „Eins og áætlunin var núna að fara að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts á byggingarstöðum í 20% úr 35%, það hefur bara töluverð áhrif.“
Samdrátturinn sé ekki bara í nýbyggingum. „Við erum að sjá á viðhaldsmarkaðnum að það er að fækka verkefnum, meðal annars út af aukinni skattheimtu,“ segir Jón Bjarni.
„Þessar hópuppsagnir sýna okkur það sem við vitum - það er kólnun í gangi,“ segir Jón Bjarni. „Það er mjög slæmt hvað það eru margir af okkar félagsmönnum að missa vinnuna.“