Er það bandaríski miðillinn TMZ sem greinir frá en þar segir að Selma Blair hafi verið um borð í vél flugfélagsins Delta Airlines á leið til John F. Kennedy-flugvallarins í New York þegar átökin áttu sér stað. Þá hafi önnur flugfreyjan verið flutt á sjúkrahús, sú með blóðnasir og bitför, en hin aðeins hlotið minniháttar meiðsl.
Þá hefur miðillinn eftir heimildum að Blair hafi verið bundin við sæti sitt og handtekin strax við lendingu en lögregla hafi greint frá því að hún hafi ítrekað sparkað í höfuð lögreglumanns sem var með henni í sjúkrabíl á leið frá flugvellinum.
TMZ greinir frá því að þau hafi undir höndum upptöku þar sem heyra megi flugstjórn óska eftir aðstoð heilbrigðisstarfsfólks við lendingu en þar hafi komið fram að tvær flugfreyjur væru meiddar, þar á meðal væri önnur með bitför.
Þá hafi Blair verið flutt á sjúkrahús til athugunar og hún dvelji þar enn en talsmaður hennar hafi sagt hana vera í stöðugu ástandi.
Óljóst sé hvað olli uppþotinu eða hvort Selma gæti átt yfir höfði sér ákæru frá Delta. Talsmaður Delta hafi sagt í samtali við TMZ að „Delta umber hvorki óstýriláta né ólöglega hegðun, þar sem öryggi viðskiptavina okkar og áhafnar er alltaf í fyrirrúmi.“
Selma er þekktust fyrir hlutverk sín í Cruel Intentions, The Sweetest Thing og Hellboy-myndunum. Hún fór einnig eftirminnilega með hlutverk Vivian Kensington í kvikmyndinni Legally Blonde frá árinu 2001.