Stór hópur andstæðinga aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið finnur bæklingi Ungs jafnaðarfólks allt til foráttu, eru samtökin sökuð um einelti, málefnafæð og illsku, þá er kallaður til sjálfur Adolf Hitler í umræðunni. Í bæklingnum auglýsir Ungt jafnaðarfólk landsþingið sitt og fleiri viðburði fram undan en einnig stuttan lista yfir því hvers vegna bæklingahöfundurinn ætlar að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni, þar er gefin sú gamansama ástæða að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, ætlar að kjósa nei.
Finna bæklingi Ungs jafnaðarfólks allt til foráttu: „Adolf Hitler myndi kjósa Já“