Skiptinemasamtökin AFS auglýsa eftir fjölskyldum til að taka á móti erlendum ungmennum sem koma til Íslands í skiptinám í ágúst. Fjölskyldur mega vera af öllum stærðum og gerðum svo lengi sem þær eru tilbúnar að opna heimili sitt fyrir ungmenni í þrjá, fimm eða tíu mánuði.
Enn vantar 18 fjölskyldur
Ingunn Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri AFS á Íslandi, segir að enn vanti 18 fjölskyldur og að þeirra sé óskað um allt land.
„Við erum að taka á móti 25 krökkum núna í ár og ég held það séu 23 nú þegar búnir að sækja um.“
Og hvernig gengur að finna fjölskyldur?
„Þú heyrir að ég hlæ aðeins, það gengur alltaf hálferfiðlega, það er svo skrítið af því eins og ég segi ég held það geti verið afskaplega gefandi fyrir fjölskyldur að taka að sér skiptinema, þú ferð svona örlítið út fyrir þægindahringinn en þú færð bara svo mikið í staðin.“
Ingunn segir að ekki þurfi að tjalda öllu til þegar tekið er á móti skiptinema, markmiðið sé að ungmennin kynnist íslensku heimilislífi og verði hluti af fjölskyldunni meðan á dvölinni stendur.
„Þetta getur nefnilega auðgað lífið og ég tala nú ekki um fyrir eldra fólk sem er með nóg af plássi en vantar kannski félagsskap, vantar meiri samskipti við fólk“
Og verða ungmennin oft hluti af fjölskyldunni?
„Já þau verða oft hluti af fjölskyldunni. Því miður er það ekki alltaf, því fólk er misjafnt eins og gengur, en þau verða mjög oft hluti af fjölskyldunni. Í kringum mig heyri ég af krökkum sem eru ennþá í sambandi við fjölskyldurnar sínar eftir jafnvel þrjátíu ár.“