Karlmaður hlaut í gær fjögurra ára skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir ítrekuð og gróf kynferðisbrot gegn systur sinni. Brotin framdi maðurinn fyrir tveimur áratugum, frá 2003 til 2007.
Einn dómari skilaði sératkvæði og vildi ekki skilorðsbinda refsingu mannsins. Maðurinn hafði áður verið sýknaður í héraði. Hann var fimmtán ára þegar brotin sem hann var ákærður fyrir hófust en þeim lauk áður en hann varð tvítugur.
Játaði brot framin áður en hann náði sakhæfisaldri
Hann játaði að hafa brotið gegn stúlkunni þegar hann var barn en neitaði því að það hefði gerst eftir að hann náði sakhæfisaldri. Hann sagðist ekki átta sig á því hvenær brotin byrjuðu eða hversu mörg þau hefðu verið. Hann sagði þeim hafa lokið þegar hann missti sveindóminn í níunda bekk. Dómurum þótti sannað að maðurinn hefði haldið áfram að brjóta á systur sinni eftir að hann varð sakhæfur.
Í dóminum segir að maðurinn hafi tjáð sig takmarkað um atvik og frásögn hans verið nokkuð óskýr og reikul.
Brotið á stúlkunni í tæpan áratug
Framburður konunnar var staðfastur frá upphafi, að því er segir í dóminum. Hún lýsti brotum í öllum meginatriðum með sama hætti fyrir dómi og í skýrslum hjá lögreglu. Konan sagði fyrir dómi að bróðirinn hefði fyrst brotið á henni þegar hún var þriggja eða fjögurra ára gömul. Þessu hélt hann áfram þar til hún var ellefu ára.
Dómurinn studdist meðal annars við upptöku af samtali konunnar við manninn þegar þau voru komin á fullorðinsaldur, vitni sem konan hafði greint frá brotunum þegar hún varð eldri og skýrslur Stígamóta og Bjarkarhlíðar.
Dómararnir sögðu að maðurinn hefði misnotað sér það traust sem barnung systir hans bar til hans og brotið alvarlega gegn henni. Var það metið við ákvörðun refsingar. Einnig var litið til þess að hann hefði verið ungur þegar brotin hófust og að 20 ár væru liðin frá því hann braut á systur sinni. Dómararnir ákváðu því að dæma hann í fjögurra ára skilorðsbundið fangelsi.
Einn vildi ekki skilorð
Símon Sigvaldason landsréttardómari skilaði sératkvæði. Hann vildi líka sakfella manninn en taldi ekki rétt að hafa dóminn skilorðsbundinn. Hann taldi að frekar ætti að líta til ungs aldurs mannsins og dæma hann í tveggja ára fangelsi sem hann þyrfti að afplána.
Fjölskyldan skiptist í fylkingar
Brotin framdi maðurinn á heimili fjölskyldunnar og í ferðalögum.
Fjölskyldan skiptist í fylkingar eftir að konan greindi frá brotum bróðurins gegn sér. Konan og systir hennar eru ekki í samskiptum við foreldra sína og bræður.