Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur hafnað því að maður fái endurgreitt fyrir hluta þess verðs sem hann greiddi fyrir gistingu á ónefndu gistiheimili. Vildi maðurinn meina að á bókunarsíðunni Booking.com hefði komið fram að hvert herbergi væri með sérbaðherbergi. Við komuna hefði hins vegar komið í ljós að eitt sameiginlegt baðherbergi væri fyrir öll herbergin. Hélt hann því fram að gistiheimilið hefði vísvitandi breytt þeirri lýsingu sem fram kæmi á aðbúnaðinum þar á Booking.com, eftir að hann hefði bókað gistinguna.
Krafðist maðurinn, sem virðist af erlendu bergi brotinn og verið á ferðalagi á Íslandi, endurgreiðslu á fjórðungi af því verði sem hann greiddi fyrir gistinguna, 11o evrur af þeim 440 sem hann greiddi. Gisti hann á gistiheimilinu í tvær nætur.
Í kröfu sinni hélt maðurinn því fram að á Booking.com hefði staðið að á gistiheimilinu væri inni á hverju herbergi skrifborð, svæði til að borða á og sérbaðherbergi. Síðar hafi gistiheimilið tekið það út úr lýsingunni að á hverju herbergi væri sérbaðherbergi. Þá hafi engin loftræsting verið í herberginu eins og fullyrt hefði verið á Booking.com, aðeins stök vifta, og aðstaða til að borða hafi verið í sameiginlegu rými en ekki í herberginu sjálfu. Loks hafi engin kaffivél verið í herberginu líkt og komið hefði fram í lýsingunni.
Engar sættir
Sagðist maðurinn hafa kvartað undan herberginu í gegnum Booking.com en fengið þau svör að rekstraraðili gistiheimilisins væri ekki fús til að leita sátta um ágreininginn. Taldi hann um vanefndir af hálfu gistiheimilisins að ræða.
Í andsvörum gistiheimilisins var því hafnað alfarið að manninum hafi verið seld þjónusta á röngum forsendum eða að lýsingin hafi verið villandi á nokkurn hátt. Skýrt kæmi fram í öllum auglýsingum bæði á Booking.com og Airbnb, að um væri að ræða gistiheimili með sameiginlegu salerni og sturtu. Það fyrirkomulag væri í samræmi við rekstrar- og starfsleyfi.
Fullyrðing mannins um að lýsingu á gistiheimilinu hafi verið breytt eftir á væri ekki á rökum reist. Var fullyrt að lýsingin hafi verið samhljóða frá upphafi rekstursins en bent á að Booking.com búi til samantektartexta fyrir gististaði út frá þeim upplýsingum sem skráðar séu í stjórnborði rekstraraðila. Rekstraraðili hafi hins vegar ekki heimild til að breyta eða hafa áhrif á orðalag þess texta, sem sé almenn samantekt sem ætlað sé að nýtast fyrir þýðingar og leitarvélar en sé ekki bindandi hluti einstakra herbergislýsinga. Var vísað til framlagðrar herbergislýsingar hans þar sem komi skýrt fram að umræddu herbergi fylgi ekki sérbaðherbergi og eigi viðskiptavinur ekki að geta komist hjá að sjá þær upplýsingar þegar bókun sé staðfest.
Einnig kom fram í andsvörunum að það væri skýrt í lýsingunni að það væri loftræsting í herbergjunum sem væri raunin og heldur hafi aldrei verið fullyrt að kaffivél væri inni á herberginu. Skýrt væri að kaffivél og eldhúsaðstaða væri í sameiginlegu rými líkt og tíðkist jafnan á gistiheimilum.
Sagði rekstraraðilinn einnig að hann hefði hitt manninn á gistiheimilinu og hann hefði aldrei lýst yfir óánægju með herbergið við sig.
Ósannað
Í niðurstöðu kærunefndar vöru- og þjónustukaupa segir að maðurinn hafi ekki lagt fram nein gögn um að lýsingu á aðbúnaðinum á gistiheimilinu hafi verið breytt eftir á. Á Booking.com standi nú skýrum stöfum að á gistiheimilinu sé sameiginlegt baðherbergi. Maðurinn hafi verið beðinn um að leggja fram skrifleg gögn máli sínu til stuðnings. Hann hafi hins vegar sagst ekki geta framvísað slíkum gögnum.
Nefndin segir að því hafi ekki verið sýnt fram á að upplýsingar um eiginleika herbergja á gistiheimilinu hafi verið misvísandi eða rangar á Booking.com.
Segir nefndin manninn hafa upplýst um að Booking.com hafi boðið honum 88 evrur í bætur.
Í ljósi þessa var kröfum mannsins um endurgreiðslu á fjórðungi af því verði sem hann greiddi fyrir herbergið því hafnað.