ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, hefur nú samþykkt fyrirhugaða endurnýjun á styrkjakerfinu fyrir einkarekna fjölmiðla á Íslandi fyrir tímabilið 2026–2031.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni.
„Markmið kerfisins er að styrkja ritstjórn einkarekinna fjölmiðla á Íslandi til að styðja við miðlun frétta og lýðræðislega umræðu, auk þess að styrkja stöðu íslenskrar tungu. Um er að ræða viðbragð við krefjandi rekstrarskilyrðum á fjölmiðlamarkaði á Íslandi, breyttri neytendahegðun og aukinni alþjóðlegri samkeppni,“ segir í henni.
Tvenns konar stuðningur
Tvenns konar stuðningur felst í kerfinu að sögn ESA. Það séu annars vegar almennir styrkir sem standi straum af hluta rekstrarkostnaðar við framleiðslu frétta- og dægurmálaefnis.
Hins vegar eru það viðbótarstyrkir til þjónustuveitenda sem bjóða upp á samfellda fréttaþjónustu á landsvísu.
Kostnaður sem telst styrkhæfur eru laun starfsfólks ritstjórnar og greiðslur til verktaka sem vinna fréttir og skylt efni. Gildistími kerfisins er til 1. janúar 2031.
Árleg fjárveiting til styrkjanna nemur 500 milljónum króna á þessu ári en 800 milljónum frá og með næsta ári.
Hlutverk ESA segir stofnunin að sé að „eftirlit með eftirlit með ríkisaðstoð sem veitt er af EFTA-ríkjunum innan EES.“