Maður gisti fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun grunaður um að hafa framið líkamsárás í Háaleitishverfi.
Lögreglan rannsakar einnig innbrot og þjófnað úr gámi í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í morgunskeyti lögreglunnar þar sem að stærstum hluta er greint frá umferðarlagabrotum á borð við hraðakstur, akstur undir áhrifum og án ökuréttinda.
Minnst einn fékk sekt fyrir að aka talsvert yfir löglegum hraða. Einn ók bifreið búinni nagladekkjum, annar hafði filmur í framrúðum og þeim þriðja var gert að mæta með bíl sinn í skoðun enda ljóslaus að aftanverðu.