Tólf ára drengur fannst látinn með„blautt baðhandklæði bundið mjög þétt“ um hálsinn í borginni Rennes í Frakklandi í dag. Franska lögreglan hefur hafið morðrannsókn.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu saksóknarans í Rennes.
Drengurinn fannst í runna við bakka árinnar Vilaine, sem rennur í gegnum borgina, eftir að sjómaður heyrði óp í barni og hringdi í lögreglu.
„Aðstæðurnar sem leiddu til dauðans eiga eftir að koma í ljós,“ en „aðkoma þriðja aðila er meðal tilgátanna,“ segir í yfirlýsingunni.
Lögreglan hefur hafið rannsókn í kringum ána og íbúðabyggð í grennd.