Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir leiðsögumaður varð vitni að banaslysinu í Stuðlagili í fyrradag og var meðal þeirra fyrstu sem brugðust við þegar maður féll í Jökulsá á Dal.Auðdís greinir frá þessu í færslu á Facebook og kallar eftir auknu öryggi og betri innviðum við Stuðlagil. Hún gagnrýnir að lítið hafi verið gert til að tryggja öryggi ferðamanna á svæðinu þrátt fyrir mikinn fjölda gesta og bendir á að þetta sé annað banaslysið þar á tveimur árum.„Ég get ekki sagt að gærdagurinn hafi verið besti vinnudagur lífs míns,” segir Auðdís í færslunni sem birtist í gærkvöldi.
Auðdís horfði hjálparvana á harmleikinn: „Þetta er án efa eitt það erfiðasta sem ég hef lent í“