Baldvin M. Hermannsson, forstjóri Air Atlanta, leiðir hóp lykilstjórnenda sem hefur eignast 51 prósents hlut í flugfélaginu. Á sama tíma keypti bandaríska félagið Atlas Air Worldwide 49 prósent í fyrirtækinu. Bandaríska félagið eignaðist allt hlutafé í tveimur fjárfestingafélögum Air Atlanta sem eiga allar flugvélar félagsins.
Fyrri eigendur áttu Air Atlanta í tæp tuttugu ár. Það eru þeir Hannes Hilmarsson, Geir Valur Ágústsson, Stefán Eyjólfsson og Helgi Hilmarsson sem eignuðust flugfélagið og tengd fyrirtæki 2007.
Í tilkynningu um viðskiptin segir að engar breytingar verði á daglegum rekstri, staðsetningu eða starfsmannahaldi. Jafnframt ætla núverandi stjórnendur áfram að stýra uppbyggingu félagsins með sama hætti og áður.