Yfirvöld í Austurríki hafa hafið rannsókn á tveimur einstaklingum sem grunaðir eru um að hafa greitt háar fjárhæðir fyrir að skjóta fólk í svokölluðum leyniskyttuveiðiferðum í Sarajevó í Bosníu og Hersegóvínu þegar borgin var umsetin frá 1992-1996. Dagblaðið The Times greinir frá því að rannsóknin beinist að einstaklingi sem sé austurrískur ríkisborgari og öðrum, hvers þjóðerni hefur ekki verið gefið upp.
Bosníu-Serbar sátu um borgina í stríðinu og leyniskyttur héldu til í hæðunum fyrir ofan borgina og skutu á almenna borgara; menn, konur og börn. Um 14.000 almennir borgarar voru drepnir í umsátrinu um Sarajevó. Leyniskyttuveiðiferðirnar voru skipulagðar af Króötum og Serbum og þeir sem tóku þátt greiddu aukalega fyrir að skjóta barnshafandi konur og börn.
Enn eru að koma fram nýjar upplýsingar
Í bókinni Pay and Shoot sem kom út í apríl og er eftir króatíska blaðamanninn Domagoj Margetic, kom fram að Austurríkismaður væri einn af leyniskyttunum. Einn heimildarmaður í bókinni mundi eftir að hafa séð austurrísk vegabréf hjá leyniskyttum. Þá tóku einnig breskar, franskar, spænskar, rússneskar og þýskar leyniskyttur þátt í þessum veiðiferðum.
Alma Zadic, fyrrum dómsmálaráðherra og nú þingmaður fyrir Græningja á austurríska þinginu, kallaði eftir því að rannsókn yrði hafin á málinu. Zadic er fædd í Bosníu. Hún sagði ásakanirnar vera stríðsglæpi sem yrði að rannsaka og draga gerendur til ábyrgðar. Tilhugsunin um að fólk hafi verið tilbúið til að drepa almenna borgara og börn fyrir peninga sé óbærileg.
Rannsókn hafin á Ítalíu
Ítölsk yfirvöld hafa einnig hafið rannsókn á þætti Ítala í þessum veiðiferðum eftir að ítalski blaðamaðurinn Ezio Gavazzeni gaf út bókina The Weekend Snipers um leyniskyttuveiðiferðirnar og þátttöku Ítala í þeim. Hann skrifaði bókina eftir að hafa séð heimildarmyndina Sarajevo Safari eftir Miran Zupanic frá 2022.
Austurríska dómsmálaráðuneytið hefur þó sagt að rannsókn þeirra byggist ekki á bók Ezio Gavazzeni. Ábending er sögð hafa komið frá heimildarmanni í Austurríki.