Árekstur varð á Vesturlandsvegi við Bauhaus á fjórða tímanum í dag. Einn bíll valt út af veginum.
Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi lögreglustöðvar 4 við Vínlandsleið, segir að tilkynningin hafi borist klukkan 15:21.
„Þetta var allavega tveggja bíla árekstur og bílvelta, ég veit ekki hvort fleiri bílar komu við sögu. Það er ekki vitað með slys á fólki en umferðardeildin var kölluð til og er að aðstoða okkur í þessu,“ segir Hildur.
Hildur segir að talsverð umferðarteppa hafi myndast sökum yfirstandandi aðgerða á vettvangi.
Um tíu mínútum áður hafi lögreglu borist tilkynning um útafakstur á Suðurlandsvegi, austan við Bláfjallaafleggjara. Engin slys hafi orðið á fólki.