Halla Gunnarsdóttir óttast að kjarasamningum verði sagt upp á morgun. Ekkert samtal sé í gangi við Samtök atvinnulífsins. Lögð hafi verið fram lausn fyrir samtökin rétt fyrir hádegi. Síðan þá hafi eitt símtal borist sem hafi verið þvert nei.
„Staðan er sú að Samtök atvinnulífsins eru ekki hérna í húsi hjá okkur og hafa ekki komið til lausnamiðaðs samtals við okkur eins og við vonuðumst eftir. Þannig að við erum ekki í samtali eins og er,“ segir Halla.
Boðað hefur verið til stjórnarfundar hjá VR klukkan 17:30 og hjá Fagfélögunum. Stéttarfélögin hafa frest til klukkan fjögur á morgun til að ákveða hvort slíta eigi kjarasamningum eða ekki. Halla óttast að samningar muni ekki halda.
„Já, ég óttast það,“ segir Halla. „Við höfum verið mjög skýr með það að við teljum að það þurfi að koma til móts við áhyggjur okkar af þeim hópum sem hafa verið að ganga í gegnum launalækkanir undanfarin tvö og hálft ár. Núna er verið að leggja fyrir það fólk að halda áfram að taka á sig launalækkanir í mögulega hálft annað ár til viðbótar á tímum þar sem það glímir við gríðarlegan húsnæðiskostnað.“
Uppsögn gæti leitt til langra átaka
Halla telur að fari svo að samningum verði sagt upp á morgun geti það leitt til langra átaka.
„Við sjáum það líka að mörg af opinberu stéttarfélögunum eru með klausur í sínum samningum um að þau geti sagt upp samningum ef samningar á almennum vinnumarkaði losna,“ segir Halla sem segist vita til þess að einhver af þeim félögum séu að skoða sína stöðu.
„Þannig að þetta gæti leitt til mikils óróa í vetur,“ segir hún.
Tímasetning árshátíðarferðar SA sé undarleg
Halla telur samningsvilja SA hafa verið lítinn frá upphafi. Kynntar hafi verið lausnir í viðræðum síðan í lok ágúst en þeim öllum hafnað.
„Ríkisstjórnin hefur komið inn í þetta samtal mjög lausnarmiðuð, sveitarfélögin eru tilbúin að leggja sitt af mörkum og einstök fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins hafa stigið fram en Samtök atvinnulífsins skella bara í lás og það er bara mjög alvarleg staða,“ segir Halla sem telur að með þessu sé geta VR og annarra stéttarfélaga til þess að gera langtímasamninga skert.
„Því ef við gerum langtímasamninga með forsenduákvæðum og forsendubrestur skiptir engu máli, þó að fólk í okkar félögum hafi tekið á sig launalækkun, þá auðvitað gerir það að verkum að það verður erfitt að gera slíka samninga aftur,“ segir Halla sem sér ekki fram á frekara samtal við SA á næstunni.
„Síðan sé ég það bara í fréttum að forystufólk í Samtökum atvinnulífsins er að fara í árshátíðarferð á morgun. Þannig að það svona bendir til þess að það hafi ekki verið nein gríðarleg alvara að baki, á bak við samtalið þennan tíma sem við höfum reynt að tala saman,“ segir hún.