Rjúpnaveiðimenn höfðu gengið fram á ána í gær og látið vita af dvöl hennar ásamt lömbum sínum inn á dalnum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg.
Þegar hugað var að henni í morgun varð ljóst að hún var ekki reiðubúin til að halda til byggða strax og stökk undan smölunum. Vildi þá ekki betur til en svo að ærin lenti í ánni og barst, ásamt lömbum sínum, með henni einhverja leið þangað til að hún komst í skjól í skúta.
Þar var vistin hins vegar ekki góð, þar hökti áin að hluta til í ánni og komust þau hvergi, lömbin og ærin.
Björgunarsveitarfólk hélt inn á dal og komst niður að ánni rétt ofan við skútann og gat sett þar á flot kajak. Mannskap var þannig fleytt yfir ána í skútann, að ánni og lömbum hennar. Þrátt fyrir volkið var ekkert fararsnið á henni, en lömb hennar voru samvinnufúsari og þáðu far með kajaknum á þurrt.
Ærin var hins vega á þeim buxunum að halda fyrir í skútanum en að lokum tókst björgunarmönnum að koma á hana böndum og draga yfir ána og sameina þar fjölskylduna.