Karlmaðurinn var ákærður fyrir að hafa beitt fyrrverandi kærustu sína umfangsmiklu líkamlegu ofbeldi. Fyrsta atvikið átti sér stað 14. apríl 2024.
Við skýrslutöku hjá lögreglu sagði brotaþoli að hún hefði verið ölvuð niðri í bæ og lagt leið sína á heimili fyrrverandi kærasta síns. Við komuna hafi þau byrjað að rífast eftir að maðurinn ásakaði hana um að hafa greint vinum þeirra frá því að hann væri ofbeldismaður í kjölfar atviks sem átti sér stað áður. Þau hafi átt í stormasömu sambandi og slitið því ítrekað.
Í ákærunni var manninum gefið að sök að hafa ítrekað tekið hana kverkataki, sest ofan á hana og tekið fyrir munn og nef, slegið hana ítrekað í andlitið og sparkað í búk og kýlt hana ítrekað í brjóstkassa og höfuð. Þá hafi hann rifið hana úr fötunum. Hún hlaut yfirborðsáverka víðs vegar um líkamann samkvæmt læknisskoðun. Í skýrslutöku sagðist hún hafa misst meðvitund.
Konan sendi skilaboð á móður sína sem hafði samband við lögregluna. Maðurinn var handtekinn og neitaði öllu í skýrslutöku. Í framburði sí num fyrir dómi sagði hann að þau hefðu rifist og slegist en hann hefði verið að verjast atlögu brotaþola. Hann gaf engar skýringar á áverkum hennar.
Dómurinn taldi það hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi beitt brotaþola ofbeldi.
Sökuðu hvort annað um að vera eltihrellar
Þann 14. júlí 2024 leitaði brotaþoli aftur á bráðamóttökuna með áverka og sagðist hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu mannsins. Hann hafi ráðist á hana, gripið og rifið í hár hennar og slegið endurtekið í höfuðið.
Fyrir dómara sagði maðurinn að þau hefðu rifist og það hefði endað með því að hún hefði ráðist á hann. Maðurinn hefði reynt að henda brotaþola út en það ekki tekist. Hann hefði ekki tekið eftir áverkunum á henni og einungis reynt að verja sig. Þá sagði hann að brotaþoli væri með einhvers konar þráhyggju fyrir sér.
Hún vildi meina að málið væri öfugt, að hann væri að eltihrella hana. Þau hefðu ekkert átt í samskiptum en hist fyrir tilviljun í miðbæ Reykjavíkur og þá tók hann að elta hana. Hún hafi haft áhyggjur af honum, átt í samskiptum við hann og í kjölfarið farið á heimili hans.
Mat dómsins var að frásögn brotaþola væri trúverðug og að sakfella ákærða fyrir ákæruliðinn.
„Blindfull, öskrandi og gargandi“
4. ágúst 2024 barst lögreglunni tillkynning um heimilisofbeldi í Reykjavík. Þar á vettvangi var brotaþoli með sjáanlega áverka á andliti, bólgnar varir, sár fyrir neðan nef og sár á enni. Hún vísaði lögreglumönnum á herbergi sem hún og ákærði höfðu tekið á leigu yfir nóttina.
„Í skýrslu greinir að á vettvangi hafi mátt sjá merki um átök og þar hafi allt verið á rúi og stúi. Fatnaður og snyrtivörur hafi legið á gólfi, ruslafata á hliðinni og brotin fjarstýring á borði. Á gólfi hafi einnig legið blautt blóðugt handklæði og blóðkám víðs vegar. Þá hafi verið blóðslettur á sturtugleri á baðherbergi og blóðslettur og kám á veggflísum á baði. Þá hafi legið blóðugur pappír í salernisskál,“ segir í dómnum.
Brotaþoli sagði að upptök ofbeldisins hefðu verið þegar hún fór úr herberginu að leita að símanum sínum sem hún hefði týnt. Þá hafi ákærði orðið reiður, slegið í andlit hennar og sparkað í höfuð og víðs vegar um líkamann. Einnig hafi hann tekið hana hálstaki svo hún missti meðvitund og „kastað“ henni í ískalda sturtu. Í vottorði læknis kemur fram að hún hafi verið með töluvert af yfirborðsmeiðslum og mældist mikið áfengi í blóði hennar.
Ákærði neitaði sök í skýrslutöku hjá lögreglunni. Brotaþoli hafi ítrekað veist að honum og hann varist atlögum hennar. Þau hafi farið út að borða og verið bæði ölvuð. Brotaþoli hafi svo sakað hann um framhjáhald og ráðist á hann. Hún hafi sjálf veitt sér áverka á andliti, farið sjálf í sturtu og farið fram á gang „blindfull, öskrandi og gargandi“ í þeim tilgangi að fá athygli.
Mat dómsins var að með háttsemi sinni hefði maðurinn ógnað heilsu brotaþola og velferð.
Braust inn á heimili og braut bílrúðu
Tæpum tveimur mánuðum síðar tilkynnti brotaþoli um yfirstandandi húsbrot. Þegar lögreglan kom var brotin rúða á bakdyrum hússins. Ákærði fannst inni í svefnherbergi konunnar og var hann sýnilega undir áhrifum áfengis. Hann neitaði að hafa brotist inn, sagði að brotaþoli væri kærasta sín og að hún hefði hleypt honum inn.
Fyrir dómi játaði ákærði að hafa farið inn á heimili brotaþola án leyfis. Hann hafi þó ekki brotið rúðuna eða ógnað heilsu og velferð brotaþola.
Loks í júlí 2025 tilkynnir brotaþoli lögreglu að fyrrverandi kærasti hennar sé fyrir utan íbúð hennar og lemji húsið að utan. Skömmu síðar barst önnur tilkynning um að hann væri kominn að bíl hennar og væri að brjóta rúðuna.
Þegar lögreglan kom á vettvang hljóp maðurinn burt en stöðvaði loks eftir að hún beitti úðavopni. Brotaþoli lýsti því fyrir lögreglu að hún væri að reyna að loka á hann en þau höfðu átt í samskiptum fyrir viku. Hann hafi talað illa til hennar en svo hringt seinna meir og beðið hana um að sækja sig, sem hún gerði.
Brotaþoli bannaði manninum að reykja sígarettu í bílnum og reiddist maðurinn við það. Hann hafi hrækt framan í hana og slegið tvívegis í andlitið. Þegar hann loks fór úr bílnum hafi hún hrifsað poka af brotaþola, læst bílnum og ekið heim. Hann hafi verið mjög æstur og barið á útidyr hússins.
Fyrir dómi sagði ákærði að hún hefði læst síma hans inni í bílnum og neitað að opna. Vegna þessa hefði hann brotið rúðuna. Brotaþoli sagði fyrir dómi að eftir að þau fóru úr bílnum hefði hann beðið hana um að opna aftur til að ná í símann sinn. Hún hefði ekki treyst sér til þess vegna ástands hans og hegðunar.
Sex mánuðir skilorðsbundnir
Við ákvörðun refsingarinnar var litið til þess að maðurinn hefði ekki áður sætt refsingu. Sé litið til allra brota sem beindust að heilsu brotaþola og velferð var talið að hæfileg refsing væri fangelsi í níu mánuði.
Þar sem töluverður tími er liðinn frá því að atvikin áttu sér stað verða sex mánuðir af níu skilorðsbundnir og falla niður eftir þrjú ár.
Auk þess er manninum gert að greiða brotaþola rúma milljón í skaða- og miskabætur. Þá greiðir hann málsvarslaun verjanda síns sem eru tæpar þrjár milljónir og skipaðs réttargæslumanns brotaþola tæpar 1,9 milljónir króna.
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness þann 9. nóvember.