Enginn er sagður slasaður samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins.
Þar kemur fram að skipið hafi verið á leið aftur til Rússlands og hafi haft viðkomu í hafnarborginni til að taka eldsneyti og vistir.. Stjórnin í austurhluta landsins kallar sig Ríkisstjórn þjóðarstöðugleika en landið hefur verið klofið í tvennt frá því að Muammar Gaddafi var steypt af stóli árið 2011.
Skipið sokkið á gervihnattamyndum
Myndbönd á samfélagsmiðlum sem BBC Verify staðsetti sýna skip standa í ljósum logum og reyk yfir höfninni. Gervihnattamynd frá Planet Labs PBC sýnir skip brenna í höfninni snemma í morgun.
Bandaríska greiningarfyrirtækið Vantor sem breska ríkisútvarpið vísar til segir að myndir sínar sýni rússneska herskipið Merkury, korvettu af gerðinni Project 20380 Steregusjtsjíj, bundna við bryggju á laugardag. Á myndum frá í dag sé skipið að mestu sokkið.
Austurstjórnin segir að rússneska skipið hafi notað höfnina í samræmi við gildandi samkomulag um siglingar. Atvikið sé til rannsóknar og stjórnvöld vinni með Rússum að því að komast að því hvaðan árásin kom og hver bar ábyrgð á henni.
Brotið á fullveldi landsins
Stjórnin fordæmdi þessa árás á skip í líbískri höfn og kallaði hana brot á öryggi siglinga og árás á fullveldi landsins. Líbía eigi ekki aðild að stríði Rússlands og Úkraínu né öðrum átökum.
Alþjóðlega viðurkennda ríkisstjórnin í Trípólí, Sameiningarstjórnin eins og hún kallar sig, varaði við því að erlendur herafli fái aðstöðu í landinu. Hætta stafi af því að flækja borgaralega innviði í landinu í átök annarra ríkja. Lífum borgara, innviða og eigna sé stefnt í hættu.